Hvernig bóka ég?
Til að bóka orlofshús notum við dagatalið hér að ofan. Uppteknir dagar eru ljósbleikir, en þeir sem eru lausir eru hvítmerktir. Til að bóka ákveðna daga er bæði hægt að ýta með bendli á komudag og velja fjölda nátta sem þú ætlar að bóka.
Athugið að skiptidagar eru á fimmtudögum, svo einungis er hægt að velja helgi frá fimmtudegi til mánudags (4 nætur kr.25.000) eða heila viku frá fimmtudegi til fimmtudags (7 nætur kr.35.000). Þrif eru innifalin í verði en gestir eru beðnir um að ganga frá leirtaui og skilja uppþvottavél eftir tóma.
Komutími er eftir kl 16:00 á komudegi og brottför er eigi síðar en kl. 12:00 á brottfarardegi.
Vinsamlegast athugið að hver og ein bókun þarfnast staðfestingar Umhyggju en staðfesting berst innan 24 klukkutíma frá bókun á uppgefið netfang (nema ef bókun er gerð um helgi, þá mun staðfesting berast á mánudeginum eftir). Sé bókun hafnað er einnig upplýst um það.
Allar upplýsingar um orlofshúsið berast þremur dögum fyrir komudag á uppgefið netfang bókanda. Ef bókun er gerð með styttri fyrirvara berast allar upplýsingar sama dag og bókun er staðfest af Umhyggju,
Úthlutunarreglur Umhyggju gilda yfir páska, sumar, jól og áramót og því ekki hægt að bóka í gegnum dagatalið hér að ofan. Umhyggja auglýsir sérstaklega á sínum miðlum hvenær opnað er fyrir umsóknir vegna fyrrnefndra tímabila og hvenær úthlutun mun liggja fyrir. Hér má nálgast úthlutunarreglurnar.
Í þeim vikum sem vetrarfrí grunnskóla eru að hausti (seinni hluti október) og vori (seinni hluta febrúar) eru húsin eingöngu leigð til fjölskyldna langveikra barna sem eru á grunnskólaaldri.
Securitas annast umsjón hússins, s. 533-5533.
Gæludýr eru óheimil í orlofshúsum Umhyggju.