Athugið! Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.
Staðsetning: Láttu fara vel um þig og þína í lúxusíbúð í miðbæ Akureyrar. Íbúðin er 130 fm og er afar falleg og snyrtilegt. Íbúðin er með öllum helstu þægindum m.a. háhraðanettengingu, 70 tommu sjónvarpi, hljómtækjum, öllum sjónvarpsrásum í boði á Íslandi (staðbundnum og alþjóðlegum - líka enski boltinn) og Nespresso vél.
Herbergin: Í íbúðinni eru þrjú herbergi, eitt herbergi með King-size rúmi, annað með King-size stærð sem hægt er að breyta í tvö einbreið og auk þess er eitt einbreitt rúm, og þriðja svefnherbergið er með Queen-size rúmi með einbreiðu rúmi fyrir ofan (koju). Íbúðin er með stóru baðherbergi, bæði sturtu og baðkari og þvottahúsi þar sem má finna bæði þvottavél og þurrkara, strauborð og gufujárn.
Í nágrenni: Íbúðin er staðsett beint á horni Ráðhústorgsins og aðal göngugötunnar (verslunar) Akureyrar. Sundlaug Akureyrar er aðeins í 7-10 mínútna göngufjarlægð og allir bestu veitingastaðirnir, barirnir og kaffihúsin eru í göngufjarlægð frá íbúðinni. Ókeypis bílastæði eru í aðeins 200 metra fjarlægð.
Afþreying: Mývatn, Dynjandi og Goðafoss eru í um það bil klukkustundar akstursfjarlægð frá íbúðinni. Þetta er einstök íbúð varðandi stíl, þægindi og síðast en ekki síst staðsetningu sem gerir þér kleift að skoða Akureyri fótgangandi.
Hér er á ferðinni lúxusíbúð sem hentar vel fyrir smærri hópa eða fjölskyldur.
Landhotel er glænýtt hótel sem opnaði í júní 2019. Hótelið er glæsilegt fjögurra stjörnu hótel á besta stað á suðurlandi. Hótelið er hannað með íslenska náttúru að leiðarljósi og hefur alls 69 herbergi sem eru öll mjög rúmgóð og með frábært útsýni til allra átta.
Staðsetning Landhótels er alveg einstök með drottningu okkar Heklu í næsta nágrenni og útsýni til allra átta. Hér er engin sjónmengun frá borg eða bæ og er stórkostlegt að vera á útsýnissvölum hótelsins þegar Norðurljósin æða yfir stjörnubjartan himinninn.Í 1-3 tíma radíus eru flestir áhugaverðustu ferðamannastaðir suðurlands og eru óteljandi afþreyingarmöguleikar í boði eins og hestaferðir, jöklaferðir, fjallgöngur, dagstúrar í Landmannalaugar, Þórsmörk eða Þjórsárdal má nefna sem dæmi.
Landhótel er tilvalið fyrir hópa til að koma í ráðstefnu- eða hvataferðir, en Landhótel er með glæsilega fundaraðstöðu fyrir stóra sem smáa fundi. Á Landhóteli færð þú að njóta einstakrar náttúru og þú getur alltaf gert ráð fyrir að fá vinalega og góða persónulega þjónustu.
Athugið! Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.