Athugið! Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.
Kast Guesthouse er staðsett í Lýsudal í Staðarsveit á Snæfellsnesi. Nafn gistihússins er dregið af friðsælu og grasrými fyrir ofan gistihúsið þar sem hryssurnar kasta oft folöldum sínum.
Gistihúsið opnaði í júní 2011. Hótelið byrjaði með 16 herbergi á þessum fallega stað, umkringd sjávarútsýni, fjöllum og auðvitað með hestunum í bakgarðinum. Árið 2014 var vígt ný byggingu með 11 fallegum herbergjum og urðu þá herbergin alls 27 í heildina.
Kast Guesthouse er fjölskyldurekið Hótel, með hjálp frá reyndum einstaklingum víðsvegar um heiminn. Sem hafa heillast að Íslandi og verið á Hótelinu til að vinna og njóta þess sem landið okkar hefur upp á að bjóða.
Björt og fallega innréttuð herbergin eru á Kast Guesthouse, öll herbergin eru með viðargólf og útsýni yfir náttúruna í kring. Gestir geta valið herbergi með annaðhvort sér- eða sameiginlegri baðherbergisaðstöðu (aðeins deilt á milli 2 herbergja). Hótelið býður einnig upp á þriggja manna og fjölskyldu herbergi. Sameiginleg svæði með setustofu, sjónvarpi og útiverönd með útihúsgögnum til að njóta náttúrunnar á fallegum sumar- og vetrardögum
Gistihúsið er með framúrskarandi veitingastað sem hentar 50 manns. Ljúffengur matur er útbúinn í eldhúsi Kast með eins mörgum staðbundnum og ferskum hráefnum og við getum. Morgunverður og kvöldverður geta breyst eftir árstíðum til að aðlaga ferðamynstur gesta okkar.
Laxárbakki býður gistingu og veitingar allt árið í kring.
Láxárbakki er sstaðsett í Hvalfirði á bökkum Laxár við þjóðveg 1, aðeins 12 km frá Akranesi og 17 km frá Borganesi.
Stutt er til allra helstu ferðamannastaða á vestur- og suðvesturlandi eins og Húsafells, Langjökuls, Þingvalla, Hvalfjarðar og Snæfellsness.
Stór veitingastaður er á Laxárbakka sem tekur allt að 100 manns í sæti. Ef það er veisla framundan þá er Laxárbakki klárlega einn valmöguleiki.
Staðsetning: Láttu fara vel um þig og þína í lúxusíbúð í miðbæ Akureyrar. Íbúðin er 130 fm og er afar falleg og snyrtilegt. Íbúðin er með öllum helstu þægindum m.a. háhraðanettengingu, 70 tommu sjónvarpi, hljómtækjum, öllum sjónvarpsrásum í boði á Íslandi (staðbundnum og alþjóðlegum - líka enski boltinn) og Nespresso vél.
Herbergin: Í íbúðinni eru þrjú herbergi, eitt herbergi með King-size rúmi, annað með King-size stærð sem hægt er að breyta í tvö einbreið og auk þess er eitt einbreitt rúm, og þriðja svefnherbergið er með Queen-size rúmi með einbreiðu rúmi fyrir ofan (koju). Íbúðin er með stóru baðherbergi, bæði sturtu og baðkari og þvottahúsi þar sem má finna bæði þvottavél og þurrkara, strauborð og gufujárn.
Í nágrenni: Íbúðin er staðsett beint á horni Ráðhústorgsins og aðal göngugötunnar (verslunar) Akureyrar. Sundlaug Akureyrar er aðeins í 7-10 mínútna göngufjarlægð og allir bestu veitingastaðirnir, barirnir og kaffihúsin eru í göngufjarlægð frá íbúðinni. Ókeypis bílastæði eru í aðeins 200 metra fjarlægð.
Afþreying: Mývatn, Dynjandi og Goðafoss eru í um það bil klukkustundar akstursfjarlægð frá íbúðinni. Þetta er einstök íbúð varðandi stíl, þægindi og síðast en ekki síst staðsetningu sem gerir þér kleift að skoða Akureyri fótgangandi.
Hér er á ferðinni lúxusíbúð sem hentar vel fyrir smærri hópa eða fjölskyldur.
Staðsetning: Diamond Suites i statt í hjarta Reykjanesbæjar. Diamond Suites er 34 km frá Reykjavík og er í sama húsnæði og Hótel Keflavík. Hótelið er með verönd og sjávarútsýni og gestir geta fengið sér drykk á barnum. Ókeypis WiFi er í boði á gististaðnum og ókeypis einkabílastæði.
Veitingar: Kef Bar and Restaurant - Þessi staður er veitingastaður með útsýni yfir hafið, skandinavísk matargerðarlist er sérgrein staðarins og í boði eru hádegisverður og kvöldverður. Gestir geta fengið sér drykk á barnum. Í boði er „Happy hour“.
Afþreying: Ókeypis notkun reiðhjóla er í boði á þessu hóteli og svæðið er vinsælt fyrir hjólreiðar. Hótelið býður einnig upp á bílaleigu. Bláa lónið er aðeins 21 km fjarlægð og stutt er upp á Keflavíkurflugvöll eða aðeins4 km frá gististaðnum. Aðgangi er að líkamsræktarstöðu þar sem gestir geta notað margskonar líkamsræktartæki, spinning og aerobic tíma sem og saunu og ljósabekki. Golf er í nágreninu, góðar göngu- og hjólaleiðri er alls staðar í kring, Menningar- og listastöðin Duushús, Skessuhellir, Rokksafn Íslands, Stekkjakot, Víkingheimar svo eitthvað sé nefnt.
Herbergi: Á hótelinu eru 6 herbergi. Öll herbergin eru með lúxus húsgögn og rúmgott setusvæði. Herbergin eru með sérbaðherbergi með baðkari eða sturtu, baðsloppum og ókeypis snyrtivörum. Superior herbergi eru með nuddpottum og heitum pottum. Flatskjár frá Bang Olufsen, iPad og iMac eru staðalbúnaður í öllum herbergjum Diamond Suites. Herbergin eru á efstu hæð sem býður upp á fallegt hannað setusvæði þar sem gestir geta gengið út á svalir þar sem er lúxus nuddpottur með fullkomnu útsýni yfir bæinn, Atlantshafið og Reykjanesskaga.
Gestir okkar þurfa ekki að fara langt ail að sjá töfrandi staði og upplifa alla þá fallegu náttúru sem Reykjanesið okkar hefur að bjóða. Hótel Keflavík/Diamind Suites er opið 24/7 og móttökustarsfólk okkar mun glaðlega aðstoða þig við að skipuleggja ferðalagið þitt á svæðinu. Við getum mælt með veitingastöðum, skoðunarferðum og akstri. Leyfðu okkur að vera partur af þínu ferðalagi um Reykjanesið.
GJAFABRÉF !
Frábært úrval af sumargjafabréfum. SMELLTU HÉR
Athugið! Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.