Athugið! Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.
Staðsetning: Fullbúin orlofshús einungis klukkustundar akstur frá Reykjavík. Svefnpláss í boði fyrir allt að 8 manns. Í öllum húsunum er frítt net, heitir pottar og gasgrill er við alla bústaðin einnig. Sumarhúsin Stóra- Breiða- Ástar- Gull- Gleði- og Glæsibungur eru einnig með heitum potti og útsýni yfir sveitina.
Afþreying: Stutt er í golf, sund, flottar gönguleiðir, kirkju og flott hestaleiga er á staðnum. Stutt er á Gullfoss og Geysir, Laugarvant og Flúðir. Ótrúlega flott nátturparadís allt um kring
Veitingar: Réttin er veitingastaður í Úthlíð, opin alla daga vikunnar. Hádegishlaðborðið samanstendur af hefðbundnum íslenskum heimilismat og svo er opið alla laugardaga þegar það eru leikir á skjánum. Lambakjötið leikur lykilhlutverk á matseðlinum í Réttinni. Lambaborgari, lamba lasagna, lamba salat og lamb og bernaise eru allt mjög vinsælt hjá Réttinni. Barinn er opinn öll kvöld með leikjum á risaskjá, hægt er að fara í billiard og taka skák. Frítt WiFi er í Réttinni Gestir geta valið um að borða á staðnum eða taka matinn með sér í bústaðina. Réttin er einnig móttakan fyrir bústaðina og upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn. Þess má geta að maturinn sem við bjóðum í Úthlíð er að eins miklu leyti og kostur er fenginn beint frá bónda.
Falleg nýlega uppgerð kósí íbúð með gistirými fyrir 6 manns.
Lýsing:
Íbúðin er hlýleg og kósí.
Íbúðin er á 4 og 5.hæð, neðri hæðin er með 2 svefnherbergi, annað hjónaherbergi með 2földu rúmi, hitt herbergið er með 2 rúmum. Rúmgóð stofa með borðstofuborði, flatskjá og mjög stórum svölum sem snúa að Laugaveginum.
Eldhúsið er með eldavél, örbylgjuofni og helluborði, allt sem þarf til eldamennsku.
Efri hæðin hefur ekki fulla lofthæð en á hæðinni er setustofa og rúm.
Staðsetning
Íbúðin er í miðbæ Reykjavíkur ofarlega á Laugaveginum, rétt við Umferðamiðstöðina, stutt í iðandi mannlíf og menningu, fjöldi vinsælla veitingastaða, kaffihúsa eru í seilingar fjarlægð.
10 mín. göngufæri við Lækjartorg
0 mín. göngufæri við Laugaveg
3 mín. göngufæri frá Sundhöll Reykjavíkur
5 mín. göngufæri við kjörbúð (Bónus Laugavegi)
12 mín. göngufæri frá Hörpunni
3 mín. göngufæri frá Mathöllinni Hlemmi