Athugið! Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.
Skoðaðu sumargjafabréfin HÉR
Athugið! Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.
Staðsetning: Hótel Höfn er 3ja stjörnu hótel á Hornafirði. Fegurðin er við Hótel Höfn og árstíminn skiptir ekki máli. Hið magnaða jöklaútsýni yfir Vatnajökul með allri sinni litadýrð er engu líkt. Sjáðu sólina setjast fyrir aftan jökulinn yfir sumartímann eða njóttu norðurljósanna í endurskini hans á veturna.
Veitingar: Á hótelinu er veitingastaðurinn Ósinn. Við leggjum mikla áherslu á íslenskt hágæðahráefni í okkar matseld. Á matseðlinum finna gestir girnilega humarrétti með hornfirskum humri auk kjöt-, fisk-, og grænmetisrétta. Við erum stolt af morgunverðinum okkar þar sem boðið er upp á fjölbreytt og girnilegt hlaðborð. Bakað er á staðnum og er tilvalið að njóta morgunverðarins með jöklaútsýninu.
Herbergin: Á hótelinu eru 36 stílhrein og falleg herbergi og eru 12-18 fm að stærð. Herbergin eru með sér baðherbergi, með þægilegum rúmum og mjúkum rúmfötum. Í öllum herbergjum er t.d. sjónvarp og þráðlaust net.
Afþreying: Fjölmargir útivistarmöguleikar eru í boði á svæðinu, t.d. jöklagöngur, íshellaferðir, ísklifur, bátsferðir, kayakferðir o.fl.
Athugið! Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.