Athugið! Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.
Staðsetning: Hótel Hallormsstaður er staðsett á fallegum stað nærri gönguleiðum og ýmsum afþreyingartækifærum í skógi við Lagarfljót, 25 km suður af Egilsstöðum.
Herbergi: Hótel Hallormsstaður býður upp á 92 glæsileg herbergi við allra hæfi í miðjum Hallormsstaðaskógi. Mikil áhersla er lögð á þægindi og vellíðan gesta og eru öll herbergin búin vönduðum rúmum og líni. Herbergin eru fallega hönnuð og bjóða upp á öll nútímaþægindi. Frítt Wifi, flatskjá, kaffi, te og hárþurrku ásamt góðri sturtu. Sum herbergjanna bjóða upp á stórkostlegt útsýni yfir skóginn og Lagarfljótið. Öll herbergin eru reyklaus.
Veitingar: KOL BAR & BISTRO fallegur veitingastaður staður á annarri hæð hótelsins með ótrúlega útsýni yfir vatnið og skóginum. Á matseðlinum er fjölhæfur með mikið úrval af góðum mat. Hótel barinn býður upp á ljúffenga drykki og þægileg sæti þar sem gott er að tylla sér með glas í hönd bæði fyrir og eftir kvöldverð.
SPA: Á hótelinu eru úti-og innipottar, infrarauður saunaklefi og gufuklefi. Á hótelinu má finna notalegt nuddherbergi þar sem boðið er upp á úrval af slakandi nuddmeðferðum
Í nágrenninu eru margar fallegar gönguleiðir og gestum er velkomið að leigja fjallahjól á hótelinu. Hestaferðir eru einnig í boði í nágrenninu á sumrin.
Athugið! Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.
Húsin eru rétt undir rótum Heklu á Suðurlandi, umvafin náttúruperlum til allra átta: Hekla, Landmannalaugar, Rauðufossar, Fossabrekkur, Þjófafoss og Hjálparfoss eru aðeins hluti fjölmargra fagurra staða í göngu- og aksturfjarlægð og saga Suðurlands er á næstu grösum.
Húsin eru 25 fm að stærð og er hvert þeirra uppbyggt eins og stúdíóíbúð, þar sem allt er til alls, í einu rými, baðherbergi er sér. Tveir þægilegir armstólar, sem tilvaldir er til slökunar og setu. Sjónvarp að stærð 32-43 tommur er til staðar og þar er hægt að horfa á RÚV, Netflix eða YouTube. Eldhúsið er búið litlum ísskáp, tveggja hellu eldavél, örbylgjuofni, brauðrist, kaffivél og helstu áhöldum sem þarf til eldunar. Boðið er upp á nóg af úrvali af te og kaffi. Mögulegt er að stækka eldhúsborðið. Rúmið er uppábúið með góðum dúnsængum og koddum, rúmið er 160×200 cm og rúmast vel fyrir tvo gesti. Baðherbergi er með góðri sturtu, og eru handklæði og hand- og baðsápa til staðar. Þrif eru innifalin í verði gistingar.
Innritun er eftir klukkan 16:00.
Útritun er fyrir klukkan 11:00.
Athugið! Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.
Um Farmhouse Lodge
Skeiðflöt um 100 fermetra land aðeins 10 mínútur frá Vík í Mýrdal.
Í aldaraðir hefur verið búskapur við Skeiðflöt með dýrum, en nú á dögum bjóðum við ferðamenn og eitt húsið sem við köllum Farmhouse Lodge rúmar meira en 20 manns, við bjóðum fólk velkomið á hverjum degi til okkar og þér er frjálst að vera eins lengi eins og þú vilt.
Á hverjum morgni er morgunverðarhlaðborð tilbúið frá klukkan 8-10. Farmhouse Lodge eða Skeiðflöt er 14 km frá miðbæ Vík í Mýrdal þar sem búa um 400 manns og aðeins 250 metrum frá vegi númer eitt. Gestir hafa aðgang að ókeypis bílastæðum og farangursgeymslu meðan þeir dvelja í skálanum. Í Vík í Mýrdal er bensínstöð, góðir veitingastaðir, opinber sundlaug, banki, stórmarkaður og fleiri þjónustur.