Hótel Bláfell

Hótel Bláfell var opnað á Breiðdalsvík árið 1983 en er nýlega mikið endurnýjað. Hótelið er umvafið mikilfenglegum fjöllum og svörtum söndum. Hótelið er friðsæl vin mitt í hinni hráu fegurð Breiðdalsvíkur á Austfjörðum.

Á hótelinu eru 37 vel búin herbergi, auk huggulegrar setustofu með arni og bókasafni, finnskri sauna og veitingastaðar. Veitingastaðurinn býður upp á ekta íslenska rétti, matreidda með ferskum hráefnum sem sótt er í nærumhverfi hótelsins.

Hótel Framtíð

Staðsetning: Hótel Framtíð er staðsett á Djúpavogi með frábært útsýni yfir Djúpavogshöfn og er í 8 km fjarlægð frá Búlandstindi.

Herbergin: Á hótelinu eru þrjú einstaklingsherbergi með sameiginlegu Baðherbergi, fimm tveggja manna herbergi án baðs, tuttugu 17m2 herbergi með sturtu, hreinlætisaðstöðu, hárþurrku, sjónvarpi, kaffi - og tesetti, og  þriggja manna 17m2 herbergi með þremur rúmum, sturtu, hreinlætisaðstöðu, hárþurrku og sjónvarpi,

Veitingar: Hótelið býður upp á staðbundna sjávarrétti og bar. Á hótelinu er einnig setustofa/lounge þar sem þú getur sest niður og slakað á með góðan drykk í hönd.

Afþreying: Hægt er að taka langar og stuttar gönguleiðir meðfram stórbrotinni strandlengju eldfjallasandstranda og grýttra gróðurs. Að ganga upp Búlandstind sem 1069 m að hæð er stórkostleg upplifun með fallegt útsýni. Sundlaug og heilsulind Djupivogs er aðeins í 150 metra fjarlægð.

Athugið! Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.

Framtíð Apartments & Holiday Homes - Austurland

Staðsetning: Framtíð Apartments & Holiday Homes er staðsett á Djúpavogi. Hægt er að velja um sumarhús eða íbúðir, en allar einingarnar eru með sérinngang og bjóða upp á öll helstu nútímaþægindi.

Meyjarskemma íbúðir A og B: Tvær nýjar íbúðir um 49m² að stærð. Íbúðirnar eru búnar einu svefnherbergi með tvíbreiðu rúmi og í stofu er tvíbreiður svefnsófi , þá er einnig mögulegt að koma fyrir einu aukarúmi. Hvor íbúð er með gistirými fyrir allt að 5 manns..  Í báðum íbúðum eru fullbúin eldhús, stofa, hreinlætisaðstaða með baðkari, sturtu og þvottavél/þurrkara.

Sumarhús: Fjögur 28 m² sumarhús með útsýni yfir smábátahöfnina. Öll sumarhúsin eru með einu svefnherbergi og tveimur rúmum, eldunaraðstöðu, setkrók og hreinlætisaðstöðu. Húsin henta vel fyrir tvo til þrjá einstaklinga. Af veröndinni er tilvalið að njóta útsýnisins

Íbúð 1 er 40m2 stúdíóíbúð með tvíbreiðu rúmi og hentug gisting fyrir allt þrjá eintaklinga. Íbúðin er með fullbúnu eldhúsi og hreinlætisaðstöðu.

Íbúð 2 er 40m2 með einu svefnherbergi með tvíbreiðu rúmi og tvíbreiðum svefnsófa í stofu og hentar því vel fyrir 2-4 einstakinga. Íbúðin hefur fullbúið eldhús og hreinlætisaðstöðu. Sameiginleg þvottavél er fyrir íbúð 1 og 2.

Íbúð nr. 3 er 60m2 með tveimur svefnherbergjum og hentar vel fyrir allt að 6 manns. Fullbúið eldhús, hreinlætisaðstaða, þvottavél/þurrkari og verönd með fallegri fjallasýn.

Dekraðu við þig og láttu þér líða eins og heima hjá þér. Falleg fjallasýn og nálægð við nátttúruna. 

Athugið! Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.

Hostel Framtíð

Hostel Framtíð er farfuglaheimili sem er staðsett á Djúpavogi og býður upp á herbergi með ókeypis Wi-Fi.

Á hostelinu eru 2 til 4 manna 14 fm herbergi með sameiginlegu baðherbergi. Öll herbergin eru með vask en án sérbaðherbergi. Sturtur og salerni eru frammi á gangi. Aðgangur að eldhúsi og setustofu með helstu eldunartækjum, aðstaða fyrir 8 manns að borða samtímis

Hostelið er afar vinsælt hjá hópum sem ferðast saman um Ísland en algengt er að reiðhjólafólk sem kjósa að ferðast um Ísland á reiðhjóli velja Hostelið til að hvíla sig fyrir næstu hjólatörn.

Á meðal vinsællar afþreyingar á svæðinu má nefna gönguferðir og hjólreiðar. Gestir geta leigt reiðhjól á staðnum. Þjóðvegur 1 er í innan við 5 mínútna akstursfjarlægð.


Athugið! Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.

Framtíð Camping Lodging

Viltu upplifa öðruvísi gistingu?

Staðsetning: Framtíð Camping Lodging er staðsett á Djúpavogi býður upp gistingu í litlum svefnhýsum sem hafa fengið viðurnefnið Gistitunnurnar en það er staðsettar við tjaldsvæði.

Svefnherbergi: Svefnherbergin í gistitunnunum eru með þremur einbreiðum dýnum. Þetta er svefnpokagisting sem þýðir að gestir geta komið með eigin svefnpoka. Einnig geta gestir leigt kodda, sæng, lín og handklæði á staðnum. Allar einingar eru hitaðar með rafmagnsofnum og innihalda setusvæði og rafmagnstengi.

Þjónusta og aðstaða: Í þjónustubyggingunni sem er rétt við hlið tjaldsvæðið hafa gestir aðgang að lítilli verslun, sameiginlegu eldhúsi, sameiginlegum baðherbergjum og sturtuaðstöðu sem þarf að greiða fyrir. Gestir hafa einnig aðgang að sameiginlegu þvottahúsi sem greiða þarf aukalega fyrir. Hótel Framtíð er rétt við hlið tjaldsvæðisins og þar er hægt að nálgast ókeypis þráðlaust net og ýmsar veitingar.

Af áhugaverðum stöðum á Austurlandi má til dæmis nefna Höfn, Jökulsárgljúfur og Fáskrúðsfjörður. Næsti flugvöllur er Egilsstaðaflugvöllur, 86 km frá gististaðnum.

Athugið! Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.

Hótel Laxá - Norðurland

Staðsetning: Hótelið Laxá er á einstaklega kyrrlátum og fallegum stað, staðsett um 2 km frá Mývatni og í 30 mínútna akstursfjarlægð frá Goðafoss og Kröflu gígnum. Mývatns náttúruböð eru í 20 mínútna akstursfjarlægð frá hótelinu en Húsavík er í 45 mínútna akstursfjarlægð. Hestaferðir og gönguferðir í fallegu umhverfi eru algeng starfsemi á svæðinu.

Herbergin: Hótel Laxá var opnað árið 2014 og stendur við hið fallega Mývatn. Á hótelinu er að finna tvær herbergistegundir: standard herbergi og herbergi með útsýni yfir vatnið. Herbergin er innréttuð á nútímalegan hátt og hægt að bæta við auka rúmi sé þess óskað.

  • Standard herbergin: Í Standard herbergjum er hjónarúm eða tvíbreitt rúm og baðherbergi með sturtu. Herbergin eru 18m, mjög rúm góð og henta vel fyrir tvær fullorðna manneskjur. Hægt er að óska eftir auka rúmi fyrir þriðja einstaklinginn í herbergið gegn aukagjaldi.

  • Lake view herbergin: Frábært útsýni er í þessum herbergjum þar sem horft er yfir Mývatn út frá glugga herbergisins.herbergjum er hjónarúm eða tvíbreitt rúm og baðherbergi með sturtu. Herbergin eru 18m, mjög rúm góð og henta vel fyrir tvær fullorðna manneskjur. Hægt er að óska eftir auka rúmi fyrir þriðja einstaklinginn í herbergið gegn aukagjaldi.

Afþreying: Náttúruperlur við Mývatn, Gönguleiðir, fossar, fuglalífið, jarðböð og Hverasvæði.  Frábær staður til að njóta náttúrunnar við Mývatn. Stutt er í alla hugsanlega afþreyingu, Jarðböðin á Mývatni, Dimmuborgir, Dettifoss, Ásbyrgi, Húsavík og margt fleira.
 
Veitingar:  Á Hótel Laxá er veitingastaðurinn, Eldey,  en nafnið er dregið af einni af eyjunum Mývatns.  Góður matur og drykkur, góð þjónusta og fallegt umhverfi skapa ógleymanlega kvöldstund

Athugið!  Allar bókanir og greiðslur í gegnum leitarvél Ferðaeyjaunnar  fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.

Kast Guesthouse

Kast Guesthouse er staðsett í Lýsudal í Staðarsveit á Snæfellsnesi. Nafn gistihússins er dregið af friðsælu og grasrými fyrir ofan gistihúsið þar sem hryssurnar kasta oft folöldum sínum.

Gistihúsið opnaði í júní 2011. Hótelið byrjaði með 16 herbergi á þessum fallega stað, umkringd sjávarútsýni, fjöllum og auðvitað með hestunum í bakgarðinum. Árið 2014 var vígt ný byggingu með 11 fallegum herbergjum og urðu þá herbergin alls 27 í heildina.
Kast Guesthouse er fjölskyldurekið Hótel, með hjálp frá reyndum einstaklingum víðsvegar um heiminn. Sem hafa heillast að Íslandi og verið á Hótelinu til að vinna og njóta þess sem landið okkar hefur upp á að bjóða.

Björt og fallega innréttuð herbergin eru á Kast Guesthouse, öll herbergin eru með viðargólf og útsýni yfir náttúruna í kring. Gestir geta valið herbergi með annaðhvort sér- eða sameiginlegri baðherbergisaðstöðu (aðeins deilt á milli 2 herbergja). Hótelið býður einnig upp á þriggja manna og fjölskyldu herbergi. Sameiginleg svæði með setustofu, sjónvarpi og útiverönd með útihúsgögnum til að njóta náttúrunnar á fallegum sumar- og vetrardögum

Gistihúsið er með framúrskarandi veitingastað sem hentar 50 manns. Ljúffengur matur er útbúinn í eldhúsi Kast með eins mörgum staðbundnum og ferskum hráefnum og við getum. Morgunverður og kvöldverður geta breyst eftir árstíðum til að aðlaga ferðamynstur gesta okkar.

Blábjörg Guesthouse - Borgarfjörður eystri

Staðsetning: Blábjörg Guesthouse er staðsett í sjávarþorpinu Borgarfirði eystri, 71 km frá Egilsstöðum. Blábjörg er með gistiheimili, veitingastað og heilsulind. Gistiheimilið býður upp á breitt úrval af gistingu frá herbergjum með sameiginlegri aðstöðu til lúxusíbúða. Boðið er upp á ókeypis WiFi og ókeypis bílastæði.

Tveggja manna herbergi: Björt herbergi með tvíbreið rúm, viðargólfi og gólfhitun. Sameiginleg baðherbergi. Kvistgluggi.
Stúdíoíbúð: Stúdíóíbúðin er með eitt hjónarúm í svefnherberginu, einn svefnsófi í stofunn, flatskjá, eldhúskrók með uppþvottavél, þvottavél og eigin verönd. Baðherbergið er með sturtu. Íbúðin er 60 m² að stærð og rúmar 4 fullorðna.

Tveggja herbergja íbúð: Íbúðin er Björt og nútímaleg tveggja herbergja íbúð með sérinngang, sófa, fullbúnu eldhúsi með uppþvottavél, flatskjá og eigin verönd.  Baðherbergið er með sturtu. Eitt svefnherbergið  er með hjónarúmi og hitt svefnherbergið með tveimur einbreiðum rúm, alls fjögur gistipláss.

Þriggja herbergja íbúð: Íbúðin er björt og nútímaleg þriggja svefnherbergja íbúð með sérinngangi, flatskjá, fullbúnu eldhúsi með uppþvottavél og eigin verönd. Tvö baðherbergi með sturtu. Þvottavél og þurrkari. Eitt svefnherbergi er með einu hjónarúmi, annað svefnherbergið er með einu hjónarúmi, og þriðja svenherbergið er með tveimur einbreiðum rúmum, alls sex gistipláss.

Veitingar: Veitingastaðurinn okkar, Frystiklefinn, býður upp á fjölbreytta rétti þar sem áherslan er á staðbundið ferskt hráefni. Á matseðlinum finnur þú sígilda rétti í  bland við hefðbundinn íslenskan mat, allt frá pizzum til sviðasultu.

Slökun: Ef þig vantar hvíld og slökun, þá er Musterið, Spa&Wellness, fullkominn staður til að slaka á eftir skemmtilegan dag. Útsýnið úr heitu pottunum er stórkostlegt.

Blábjörg býður þér einstakt og frábært tækifæri til að skoða falinn fjársjóð sem heitir Borgarfjörður eystri. Svæðið hefur upp á margt að bjóða fyrir allt náttúruáhugafólk, þar á meðal nokkrar af fjölmennustu byggðum álfa á Íslandi og gífurlega fjölbreytni gönguleiða. Það er stutt í Hafnarhólmann sem býður upp á besta aðgengi að lunda á Íslandi, þar getur þú fylgst með fuglunum í tveggja metra fjarlægð.


Athugið! Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.

Hótel Keflavík - Reykjanes

Staðsetning: Hótel Keflavík er staðsett í miðbæ Keflavíkur og rétt hjá útlöndum enda er Keflavíkurflugvöllur í aðeins 5 mín fjarlægð frá hótelinu. Keflavík er staðsett við Reykjanesskagann sem ber stórkostlegu náttúru, í miðbæ Keflavíkur, í 5 mínútna fjarlægð frá KEF flugvelli og aðeins 15 mínútur frá Bláa lóninu. Hótel Keflavík rekur einnig Diamond Suites sem er 5 stjörnu hótel og Guesthouse Keflavik

Veitingar: Í fallega glerskálanum okkar getur þú borðað undir stjörnunum bæði að innan eða utan á veitingastaðnum KEF Restaurant & Bar þar sem matreiðslumenn okkar munu útbúa máltíðina með ferskasta og besta íslenska hráefninu. Diamond Bar er okkar nýji og einstaki bar sem er staðsettur við móttöku hótels. Á daginn geta gestir okkar notið góð kaffis og meðlætis en á kvöldin erum við með fjölbreytt úrval af hágæða vínum í fallegu umhverfi. Á morgnana munt þú njóta okkar glæsilega morgunverðarhlaðborðs frá klukkan 08:00-10:00 alla daga og er það innifalið í dvöl þinni.

Afþreying: Á hótelinu er frí afnot að líkamsræktarstöð, þar er einnig gufubað og fitness-tímar á staðnum. Ókeypis reiðhjól eru á staðnum, golf er í nágreninu, góðar göngu- og hjólaleiðri og síðan er siglingar í nágreninu. Stutt er á ýmsa afþreyingu og athyglisverða staði sbr. Bláa Lónið, brúnna á milli heimsálfanna. Hægt er að fara í hvalaskoðun, sjá Víkingasafnið og risann inn í fjallinu svo eitthvað sé nefnt.

Herbergi: Á hótelinu eru 70 herbergi, hótelið býður upp á margs konar hlý og notaleg herbergi og svítur, margar nýuppgerðar. Megináherslan okkar er þægilegt aðstaða með faglegri og vinalegri þjónustu sem lætur þér líða eins og heima. Herbergin skiptast í standard herbergi með tvíbreiðurúmi, Delux-herbergi með tvíbreiðurúmi, eins manns herbergi með einbreiðu rúmi, Junior svíta með einu meðalstóru tvíbreiðurúmi, Basic herbergi fyrir þrjá með mörgum rúmum og Fjölskylduherbergi.  

Móttakan er opin 24/7 og móttökustarsfólk okkar mun glaðlega aðstoða þig við að skipuleggja ferðalagið þitt á svæðinu. Við getum mælt með veitingastöðum, skoðunarferðum og akstri. Leyfðu okkur að vera partur af þínu ferðalagi um Reykjanesið.

   Fyrri síða12 Næsta síða >>