Hótel Bláfell

Hótel Bláfell var opnað á Breiðdalsvík árið 1983 en er nýlega mikið endurnýjað. Hótelið er umvafið mikilfenglegum fjöllum og svörtum söndum. Hótelið er friðsæl vin mitt í hinni hráu fegurð Breiðdalsvíkur á Austfjörðum.

Á hótelinu eru 37 vel búin herbergi, auk huggulegrar setustofu með arni og bókasafni, finnskri sauna og veitingastaðar. Veitingastaðurinn býður upp á ekta íslenska rétti, matreidda með ferskum hráefnum sem sótt er í nærumhverfi hótelsins.

Hótel Framtíð

Staðsetning: Hótel Framtíð er staðsett á Djúpavogi með frábært útsýni yfir Djúpavogshöfn og er í 8 km fjarlægð frá Búlandstindi.

Herbergin: Á hótelinu eru þrjú einstaklingsherbergi með sameiginlegu Baðherbergi, fimm tveggja manna herbergi án baðs, tuttugu 17m2 herbergi með sturtu, hreinlætisaðstöðu, hárþurrku, sjónvarpi, kaffi - og tesetti, og  þriggja manna 17m2 herbergi með þremur rúmum, sturtu, hreinlætisaðstöðu, hárþurrku og sjónvarpi,

Veitingar: Hótelið býður upp á staðbundna sjávarrétti og bar. Á hótelinu er einnig setustofa/lounge þar sem þú getur sest niður og slakað á með góðan drykk í hönd.

Afþreying: Hægt er að taka langar og stuttar gönguleiðir meðfram stórbrotinni strandlengju eldfjallasandstranda og grýttra gróðurs. Að ganga upp Búlandstind sem 1069 m að hæð er stórkostleg upplifun með fallegt útsýni. Sundlaug og heilsulind Djupivogs er aðeins í 150 metra fjarlægð.

Athugið! Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.

Framtíð Apartments & Holiday Homes - Austurland

Staðsetning: Framtíð Apartments & Holiday Homes er staðsett á Djúpavogi. Hægt er að velja um sumarhús eða íbúðir, en allar einingarnar eru með sérinngang og bjóða upp á öll helstu nútímaþægindi.

Meyjarskemma íbúðir A og B: Tvær nýjar íbúðir um 49m² að stærð. Íbúðirnar eru búnar einu svefnherbergi með tvíbreiðu rúmi og í stofu er tvíbreiður svefnsófi , þá er einnig mögulegt að koma fyrir einu aukarúmi. Hvor íbúð er með gistirými fyrir allt að 5 manns..  Í báðum íbúðum eru fullbúin eldhús, stofa, hreinlætisaðstaða með baðkari, sturtu og þvottavél/þurrkara.

Sumarhús: Fjögur 28 m² sumarhús með útsýni yfir smábátahöfnina. Öll sumarhúsin eru með einu svefnherbergi og tveimur rúmum, eldunaraðstöðu, setkrók og hreinlætisaðstöðu. Húsin henta vel fyrir tvo til þrjá einstaklinga. Af veröndinni er tilvalið að njóta útsýnisins

Íbúð 1 er 40m2 stúdíóíbúð með tvíbreiðu rúmi og hentug gisting fyrir allt þrjá eintaklinga. Íbúðin er með fullbúnu eldhúsi og hreinlætisaðstöðu.

Íbúð 2 er 40m2 með einu svefnherbergi með tvíbreiðu rúmi og tvíbreiðum svefnsófa í stofu og hentar því vel fyrir 2-4 einstakinga. Íbúðin hefur fullbúið eldhús og hreinlætisaðstöðu. Sameiginleg þvottavél er fyrir íbúð 1 og 2.

Íbúð nr. 3 er 60m2 með tveimur svefnherbergjum og hentar vel fyrir allt að 6 manns. Fullbúið eldhús, hreinlætisaðstaða, þvottavél/þurrkari og verönd með fallegri fjallasýn.

Dekraðu við þig og láttu þér líða eins og heima hjá þér. Falleg fjallasýn og nálægð við nátttúruna. 

Athugið! Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.

Hostel Framtíð

Hostel Framtíð er farfuglaheimili sem er staðsett á Djúpavogi og býður upp á herbergi með ókeypis Wi-Fi.

Á hostelinu eru 2 til 4 manna 14 fm herbergi með sameiginlegu baðherbergi. Öll herbergin eru með vask en án sérbaðherbergi. Sturtur og salerni eru frammi á gangi. Aðgangur að eldhúsi og setustofu með helstu eldunartækjum, aðstaða fyrir 8 manns að borða samtímis

Hostelið er afar vinsælt hjá hópum sem ferðast saman um Ísland en algengt er að reiðhjólafólk sem kjósa að ferðast um Ísland á reiðhjóli velja Hostelið til að hvíla sig fyrir næstu hjólatörn.

Á meðal vinsællar afþreyingar á svæðinu má nefna gönguferðir og hjólreiðar. Gestir geta leigt reiðhjól á staðnum. Þjóðvegur 1 er í innan við 5 mínútna akstursfjarlægð.


Athugið! Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.

Framtíð Camping Lodging

Viltu upplifa öðruvísi gistingu?

Staðsetning: Framtíð Camping Lodging er staðsett á Djúpavogi býður upp gistingu í litlum svefnhýsum sem hafa fengið viðurnefnið Gistitunnurnar en það er staðsettar við tjaldsvæði.

Svefnherbergi: Svefnherbergin í gistitunnunum eru með þremur einbreiðum dýnum. Þetta er svefnpokagisting sem þýðir að gestir geta komið með eigin svefnpoka. Einnig geta gestir leigt kodda, sæng, lín og handklæði á staðnum. Allar einingar eru hitaðar með rafmagnsofnum og innihalda setusvæði og rafmagnstengi.

Þjónusta og aðstaða: Í þjónustubyggingunni sem er rétt við hlið tjaldsvæðið hafa gestir aðgang að lítilli verslun, sameiginlegu eldhúsi, sameiginlegum baðherbergjum og sturtuaðstöðu sem þarf að greiða fyrir. Gestir hafa einnig aðgang að sameiginlegu þvottahúsi sem greiða þarf aukalega fyrir. Hótel Framtíð er rétt við hlið tjaldsvæðisins og þar er hægt að nálgast ókeypis þráðlaust net og ýmsar veitingar.

Af áhugaverðum stöðum á Austurlandi má til dæmis nefna Höfn, Jökulsárgljúfur og Fáskrúðsfjörður. Næsti flugvöllur er Egilsstaðaflugvöllur, 86 km frá gististaðnum.

Athugið! Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.

Landhótel

Landhotel er glænýtt hótel sem opnaði í júní 2019. Hótelið er glæsilegt fjögurra stjörnu hótel á besta stað á suðurlandi. Hótelið er hannað með íslenska náttúru að leiðarljósi og hefur alls 69 herbergi sem eru öll mjög rúmgóð og með frábært útsýni til allra átta.

Staðsetning Landhótels er alveg einstök með drottningu okkar Heklu í næsta nágrenni og útsýni til allra átta. Hér er engin sjónmengun frá borg eða bæ og er stórkostlegt að vera á útsýnissvölum hótelsins þegar Norðurljósin æða yfir stjörnubjartan himinninn.Í 1-3 tíma radíus eru flestir áhugaverðustu ferðamannastaðir suðurlands og eru óteljandi afþreyingarmöguleikar í boði eins og hestaferðir, jöklaferðir, fjallgöngur, dagstúrar í Landmannalaugar, Þórsmörk eða Þjórsárdal má nefna sem dæmi. 

Landhótel er tilvalið fyrir hópa til að koma í ráðstefnu- eða hvataferðir, en Landhótel er með glæsilega fundaraðstöðu fyrir stóra sem smáa fundi. Á Landhóteli færð þú að njóta einstakrar náttúru og þú getur alltaf gert ráð fyrir að fá vinalega og góða persónulega þjónustu.

Hótel Varmaland - Vesturland

Staðsetning: Hótel Varmaland er staðsett við Varmalandsbyggðina sem er í tungunni á milli Hvítár og Norðurár, á jarðhitasvæðinu Stafholtstungur.  Á svæðinu búa um 20 manns allt árið um kring og er bæði leik- og grunnskóli fyrir nærsveitina staðsettur þar. Hótel Varmaland er aðeins um klukkustundar akstur frá höfuðborgarsvæðinu og um 15 mínútur frá Borgarnesi.

Herbergi: Á hótelinu eru 60 endurnýjuð herbergi í skandinavískum stíl, útbúin öllum helstu þægindum. Þar sem lagt var upp með að halda sjarma gamla húsmæðraskólans eru herbergin mismunandi að stærð. Economy herbergi er góður valkostur fyrir einstakling eða par en í Standard herbergjum er hægt að velja á milli þess að hafa tvíbreið rúm eða tvö rúm með náttborði á milli. Deluxe og Superior herbergi eru stærri og þar er hægt að bæta við auka rúmi svo herbergin geta rúmað allt að fjóra gesti. Öll herbergi eru með sér baðherbergi og baðvörum, sjónvarpi, te- og kaffiaðstöðu og þráðlaust net er um allt hótel.

Veitingar: Á hótelinu er hinn glæsilegi Calor veitingastaður með stórbrotið útsýni til allra átta yfir Borgarfjörðinn.  Í eldhúsi Calor töfra kokkarnir fram ljúffengar kræsingar.  Boðið er upp á morgunverðarhlaðborð sem er innifalið í gistingunni, árstíðatengdan „a la carte“ matseðil og hópamatseðil.  Eins er boðið upp á sérsniðna matseðla með fjölbreyttum veitingum við ýmis tækifæri.

Um er ræða eitt af fallegustu hótelum á landinu.

Athugið! Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.

Um íbúðina
Um er að ræða 90 fm íbúð á 2. hæð við Ráðhústorg Akureyrar með frábæru útsýni yfir iðandi mannlífið og torgið. Íbúðin er á 2.hæð á Ráðhústorginu, eldhúsið er stórt og vel búið með uppþvottavél, ofni, örbylgjuofni, kaffivél og stóru borðstofuborði. Opið er úr eldhúsinu yfir í rúmgóða stofu með stórum sófa og sjónvarpi.

Nánari lýsing:
Hjónaherbergi með stóru rúmi, skápum og útgengi á svalir og 2 herbergi, hvort með 2 rúmum, samtals eru því rúm fyrir 6 manns.
Þvottahús með þvottavél og þurrkara er í íbúðinni.
Rúmgott baðherbergi með sturtuklefa.
Borðstofan og stofan eru mjög smekkleg í einu rými með stóru borði með stólum til að njóta kvöldverðar, með sófa ásamt nýju snjallsjónvarpi.

Mjög vel búin íbúð með háhraða interneti.

Staðsetning:
Íbúðin er í hjarta Akureyrar glæsilegt útsýni yfir Ráðhústorg, fjöldi vinsælla veitingastaða, kaffihúsa og Græni hatturinn einn þekktasti tónleikastaður landsins eru í seilingar fjarlægð. Stuttur göngutúr í menningarhúsið Hof og í slökun í Sundlaug Akureyrar.

0 mín. göngufæri frá aðalgöngugötu
10 mín. göngufæri frá sundlaug.
12 mín. göngufæri við kjörbúð.
5 mín. göngufæri frá strætóstöð.
3 mín. göngufæri í Hof menningarhús
5 mín. akstursfjarlægð frá flugvelli.
Frábær staður til að vera hvort sem það er sumar, vetur, vor eða haust.

Hótel Valaskjálf - Egilsstaðir

Staðsetning: Hótel Valaskjálf er á Egilsstöðum höfuðstað Austurlands og er staðsett í hinu vinsæla héraði Fljótsdalshéraði sem hefur að geyma margar af fegurstu náttúruperlum landsins. Á Héraði er mikið menningar-og listalíf sem mótast hefur af fegurð umhverfisins. Frítt internet er á öllu hótelinu. Öll herbergin eru reyklaus.

Einstaklingsherbergi: Hótelið býður upp á nútímaleg og notaleg eins manns herbergi. Rúmin eru þægileg, 90 cm breið og veita góðan nætursvefn
Hjónaherbergi: Hótelið býður upp á nútímaleg og notaleg hjónaherbergi. Rúmin eru þægileg, 153 cm breið (queen size) og veita góðan nætursvefn.
Þriggja mannaherbergi: Á hótelinu er að finna 3 þriggja manna herbergi. Notaleg herbergi með einu 153 cm rúmi (queen size) og einu einstaklingsrúmi. Meðalstærð herbergjanna er 20m2.
 
Veitingar:  Glæsilegur veitingastaður er staðsettur á Hótel Valaskjálf. Matseðillinn er undir sterkum áhrifum frá löndunum við Miðjarðarhafið. Pasta-, fisk- og kjötréttir ásamt ekta ítölskum pizzum, eldbökuðum í handgerðum eldofni frá Róm. Að sjálfsögðu eru pizzurnar gerðar af sönnum ítölskum pizzaiolo og eingöngu úr ítölskum hráefnum. Á Ölstofunni er frábært úrval af kokteilum og öðrum drykkjum á kana.
Við hótelið er veitingastaður í Amerískur diner í 50´s stíl, eini sinnar tegundar á Íslandi. Fjölbreyttur morgunverðarseðill, tilvalinn til að hefja daginn.

Athugið!  Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.

   Fyrri síða12 Næsta síða >>