Athugið! Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.
Staðsetning: Gistiheimilið Keflavík er rétt á móti Hótel Keflavík eða í hjarta Reykjanesbæjar, þar sem þú getur notið allra þeirrar þjónustu sem er boðin fyrir hótelgesti. Gistiheimilið var endurbætt að öllu leytið árið 2019 og öll herbergi er ný með þægileg rúm, með góðum koddum og sængum og eru með fríu þráðlausu interneti, hágæða sjónvarpstæki með margs konar ókeypis stöðvum, skrifborð og skrifborðsstól, síma og handklæðum. Meginmarkmið eru einföld og góð gisting með persónulegri þjónustu sem lætur þér líða alveg eins og heima.
Veitingar: Fallegt og nýlega endurbættur veitingastaður fyrir hádegismat eða kvöldverð. KEF veitingastaður er fyrsta flokks a la carte veitingastaður sem býður upp á ævintýralega rétti, eldaða úr fersku úrvalshráefni úr héraði svo þú getur alltaf verið viss um gæðin.
Afþreying: Gisting á Gistiheimili Keflavík inniheldur okkar margrómaða morgunverðarhlaðborð sem er opið daglega frá kl 08:00-10:00, aðgangi að öllum almenningsrýmum Hótel Keflavik, tölvum í viðskiptarými, fundaraðstöðu og loks aðgangi að líkamsræktarstöðu þar sem gestir geta notað margskonar líkamsræktartæki, spinning og aerobic tíma sem og saunu og ljósabekki. Golf er í nágreninu, góðar göngu- og hjólaleiðri er alls staðar í kring, Menningar- og listastöðin Duushús, Skessuhellir, Rokksafn Íslands, Stekkjakot, Víkingheimar svo eitthvað sé nefnd.
Herbergin: Gistiheimilið er allt á einni efri hæð hússins með 5 twin herbergjum og fjölskylduherbergi fyrir 4 með kojum. Herbergin deila 2 baðherbergjum með sturtum og litlum eldhúskrók með kaffi og te aðstöðu og örbylgjuofni. Öll herbergi gistiheimilisins hafa minibar.
Móttakan er opin 24/7 og móttökustarsfólk okkar mun glaðlega aðstoða þig við að skipuleggja ferðalagið þitt á svæðinu. Við getum mælt með veitingastöðum, skoðunarferðum og akstri. Leyfðu okkur að vera partur af þínu ferðalagi um Reykjanesið.
Athugið! Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.
Lava Apartments & Rooms er staðsett í miðbæ Akureyrar. Í boði eru fimm studíó íbúðir, átta tveggja manna herbergi og eitt einstaklings herbergi. Hver íbúð fyrir sig er fullbúin með húsgögnum og helstu nauðsynjum. Allar einingar eru með sér baðherbergi og frítt internet í boði. Helsta einkenni Lava Apartments & Rooms er að staðsetningin gæti ekki verið betri. Aðeins nokkur skref í helstu veitingastaði, verslanir og fleira
Lava Apartments hentar afar vel fyrir barnafjölskyldur og hópa.
Staðsetning: Blábjörg Guesthouse er staðsett í sjávarþorpinu Borgarfirði eystri, 71 km frá Egilsstöðum. Blábjörg er með gistiheimili, veitingastað og heilsulind. Gistiheimilið býður upp á breitt úrval af gistingu frá herbergjum með sameiginlegri aðstöðu til lúxusíbúða. Boðið er upp á ókeypis WiFi og ókeypis bílastæði.
Tveggja manna herbergi: Björt herbergi með tvíbreið rúm, viðargólfi og gólfhitun. Sameiginleg baðherbergi. Kvistgluggi.
Stúdíoíbúð: Stúdíóíbúðin er með eitt hjónarúm í svefnherberginu, einn svefnsófi í stofunn, flatskjá, eldhúskrók með uppþvottavél, þvottavél og eigin verönd. Baðherbergið er með sturtu. Íbúðin er 60 m² að stærð og rúmar 4 fullorðna.
Tveggja herbergja íbúð: Íbúðin er Björt og nútímaleg tveggja herbergja íbúð með sérinngang, sófa, fullbúnu eldhúsi með uppþvottavél, flatskjá og eigin verönd. Baðherbergið er með sturtu. Eitt svefnherbergið er með hjónarúmi og hitt svefnherbergið með tveimur einbreiðum rúm, alls fjögur gistipláss.
Þriggja herbergja íbúð: Íbúðin er björt og nútímaleg þriggja svefnherbergja íbúð með sérinngangi, flatskjá, fullbúnu eldhúsi með uppþvottavél og eigin verönd. Tvö baðherbergi með sturtu. Þvottavél og þurrkari. Eitt svefnherbergi er með einu hjónarúmi, annað svefnherbergið er með einu hjónarúmi, og þriðja svenherbergið er með tveimur einbreiðum rúmum, alls sex gistipláss.
Veitingar: Veitingastaðurinn okkar, Frystiklefinn, býður upp á fjölbreytta rétti þar sem áherslan er á staðbundið ferskt hráefni. Á matseðlinum finnur þú sígilda rétti í bland við hefðbundinn íslenskan mat, allt frá pizzum til sviðasultu.
Slökun: Ef þig vantar hvíld og slökun, þá er Musterið, Spa&Wellness, fullkominn staður til að slaka á eftir skemmtilegan dag. Útsýnið úr heitu pottunum er stórkostlegt.
Blábjörg býður þér einstakt og frábært tækifæri til að skoða falinn fjársjóð sem heitir Borgarfjörður eystri. Svæðið hefur upp á margt að bjóða fyrir allt náttúruáhugafólk, þar á meðal nokkrar af fjölmennustu byggðum álfa á Íslandi og gífurlega fjölbreytni gönguleiða. Það er stutt í Hafnarhólmann sem býður upp á besta aðgengi að lunda á Íslandi, þar getur þú fylgst með fuglunum í tveggja metra fjarlægð.
Athugið! Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.