Hótel Bláfell

Hótel Bláfell var opnað á Breiðdalsvík árið 1983 en er nýlega mikið endurnýjað. Hótelið er umvafið mikilfenglegum fjöllum og svörtum söndum. Hótelið er friðsæl vin mitt í hinni hráu fegurð Breiðdalsvíkur á Austfjörðum.

Á hótelinu eru 37 vel búin herbergi, auk huggulegrar setustofu með arni og bókasafni, finnskri sauna og veitingastaðar. Veitingastaðurinn býður upp á ekta íslenska rétti, matreidda með ferskum hráefnum sem sótt er í nærumhverfi hótelsins.

Hótel Framtíð

Staðsetning: Hótel Framtíð er staðsett á Djúpavogi með frábært útsýni yfir Djúpavogshöfn og er í 8 km fjarlægð frá Búlandstindi.

Herbergin: Á hótelinu eru þrjú einstaklingsherbergi með sameiginlegu Baðherbergi, fimm tveggja manna herbergi án baðs, tuttugu 17m2 herbergi með sturtu, hreinlætisaðstöðu, hárþurrku, sjónvarpi, kaffi - og tesetti, og  þriggja manna 17m2 herbergi með þremur rúmum, sturtu, hreinlætisaðstöðu, hárþurrku og sjónvarpi,

Veitingar: Hótelið býður upp á staðbundna sjávarrétti og bar. Á hótelinu er einnig setustofa/lounge þar sem þú getur sest niður og slakað á með góðan drykk í hönd.

Afþreying: Hægt er að taka langar og stuttar gönguleiðir meðfram stórbrotinni strandlengju eldfjallasandstranda og grýttra gróðurs. Að ganga upp Búlandstind sem 1069 m að hæð er stórkostleg upplifun með fallegt útsýni. Sundlaug og heilsulind Djupivogs er aðeins í 150 metra fjarlægð.

Athugið! Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.

Framtíð Apartments & Holiday Homes - Austurland

Staðsetning: Framtíð Apartments & Holiday Homes er staðsett á Djúpavogi. Hægt er að velja um sumarhús eða íbúðir, en allar einingarnar eru með sérinngang og bjóða upp á öll helstu nútímaþægindi.

Meyjarskemma íbúðir A og B: Tvær nýjar íbúðir um 49m² að stærð. Íbúðirnar eru búnar einu svefnherbergi með tvíbreiðu rúmi og í stofu er tvíbreiður svefnsófi , þá er einnig mögulegt að koma fyrir einu aukarúmi. Hvor íbúð er með gistirými fyrir allt að 5 manns..  Í báðum íbúðum eru fullbúin eldhús, stofa, hreinlætisaðstaða með baðkari, sturtu og þvottavél/þurrkara.

Sumarhús: Fjögur 28 m² sumarhús með útsýni yfir smábátahöfnina. Öll sumarhúsin eru með einu svefnherbergi og tveimur rúmum, eldunaraðstöðu, setkrók og hreinlætisaðstöðu. Húsin henta vel fyrir tvo til þrjá einstaklinga. Af veröndinni er tilvalið að njóta útsýnisins

Íbúð 1 er 40m2 stúdíóíbúð með tvíbreiðu rúmi og hentug gisting fyrir allt þrjá eintaklinga. Íbúðin er með fullbúnu eldhúsi og hreinlætisaðstöðu.

Íbúð 2 er 40m2 með einu svefnherbergi með tvíbreiðu rúmi og tvíbreiðum svefnsófa í stofu og hentar því vel fyrir 2-4 einstakinga. Íbúðin hefur fullbúið eldhús og hreinlætisaðstöðu. Sameiginleg þvottavél er fyrir íbúð 1 og 2.

Íbúð nr. 3 er 60m2 með tveimur svefnherbergjum og hentar vel fyrir allt að 6 manns. Fullbúið eldhús, hreinlætisaðstaða, þvottavél/þurrkari og verönd með fallegri fjallasýn.

Dekraðu við þig og láttu þér líða eins og heima hjá þér. Falleg fjallasýn og nálægð við nátttúruna. 

Athugið! Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.

Hostel Framtíð

Hostel Framtíð er farfuglaheimili sem er staðsett á Djúpavogi og býður upp á herbergi með ókeypis Wi-Fi.

Á hostelinu eru 2 til 4 manna 14 fm herbergi með sameiginlegu baðherbergi. Öll herbergin eru með vask en án sérbaðherbergi. Sturtur og salerni eru frammi á gangi. Aðgangur að eldhúsi og setustofu með helstu eldunartækjum, aðstaða fyrir 8 manns að borða samtímis

Hostelið er afar vinsælt hjá hópum sem ferðast saman um Ísland en algengt er að reiðhjólafólk sem kjósa að ferðast um Ísland á reiðhjóli velja Hostelið til að hvíla sig fyrir næstu hjólatörn.

Á meðal vinsællar afþreyingar á svæðinu má nefna gönguferðir og hjólreiðar. Gestir geta leigt reiðhjól á staðnum. Þjóðvegur 1 er í innan við 5 mínútna akstursfjarlægð.


Athugið! Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.

Framtíð Camping Lodging

Viltu upplifa öðruvísi gistingu?

Staðsetning: Framtíð Camping Lodging er staðsett á Djúpavogi býður upp gistingu í litlum svefnhýsum sem hafa fengið viðurnefnið Gistitunnurnar en það er staðsettar við tjaldsvæði.

Svefnherbergi: Svefnherbergin í gistitunnunum eru með þremur einbreiðum dýnum. Þetta er svefnpokagisting sem þýðir að gestir geta komið með eigin svefnpoka. Einnig geta gestir leigt kodda, sæng, lín og handklæði á staðnum. Allar einingar eru hitaðar með rafmagnsofnum og innihalda setusvæði og rafmagnstengi.

Þjónusta og aðstaða: Í þjónustubyggingunni sem er rétt við hlið tjaldsvæðið hafa gestir aðgang að lítilli verslun, sameiginlegu eldhúsi, sameiginlegum baðherbergjum og sturtuaðstöðu sem þarf að greiða fyrir. Gestir hafa einnig aðgang að sameiginlegu þvottahúsi sem greiða þarf aukalega fyrir. Hótel Framtíð er rétt við hlið tjaldsvæðisins og þar er hægt að nálgast ókeypis þráðlaust net og ýmsar veitingar.

Af áhugaverðum stöðum á Austurlandi má til dæmis nefna Höfn, Jökulsárgljúfur og Fáskrúðsfjörður. Næsti flugvöllur er Egilsstaðaflugvöllur, 86 km frá gististaðnum.

Athugið! Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.

Úthlíð – sumarhús.

Staðsetning: Fullbúin orlofshús einungis klukkustundar akstur frá Reykjavík. Svefnpláss í boði fyrir allt að 8 manns. Í öllum húsunum er frítt net, heitir pottar og gasgrill er við alla bústaðin einnig. Sumarhúsin Stóra- Breiða- Ástar- Gull- Gleði- og Glæsibungur eru einnig með heitum potti og útsýni yfir sveitina.

Afþreying: Stutt er í golf, sund, flottar gönguleiðir, kirkju og flott hestaleiga er á staðnum. Stutt er á Gullfoss og Geysir, Laugarvant og Flúðir. Ótrúlega flott nátturparadís allt um kring
 
Veitingar:  Réttin er veitingastaður í Úthlíð, opin alla daga vikunnar. Hádegishlaðborðið samanstendur af hefðbundnum íslenskum heimilismat og svo er opið alla laugardaga þegar það eru leikir á skjánum. Lambakjötið leikur lykilhlutverk á matseðlinum í Réttinni. Lambaborgari, lamba lasagna, lamba salat og lamb og bernaise eru allt mjög vinsælt hjá Réttinni.  Barinn er opinn öll kvöld með leikjum á risaskjá, hægt er að fara í billiard og taka skák.  Frítt WiFi er í Réttinni Gestir geta valið um að borða á staðnum eða taka matinn með sér í bústaðina. Réttin er einnig móttakan fyrir bústaðina og upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn. Þess má geta að maturinn sem við bjóðum í Úthlíð er að eins miklu leyti og kostur er fenginn beint frá bónda.

Afternoon Cottages - Suðurland

Húsin eru rétt undir rótum Heklu á Suðurlandi, umvafin náttúruperlum til allra átta: Hekla, Landmannalaugar, Rauðufossar, Fossabrekkur, Þjófafoss og Hjálparfoss eru aðeins hluti fjölmargra fagurra staða í göngu- og aksturfjarlægð og saga Suðurlands er á næstu grösum.

Húsin eru 25 fm að stærð og er hvert þeirra uppbyggt eins og stúdíóíbúð, þar sem allt er til alls, í einu rými, baðherbergi er sér. Tveir þægilegir armstólar, sem tilvaldir er til slökunar og setu. Sjónvarp að stærð 32-43 tommur er til staðar og þar er hægt að horfa á RÚV, Netflix eða YouTube. Eldhúsið er búið litlum ísskáp, tveggja hellu eldavél, örbylgjuofni, brauðrist, kaffivél og helstu áhöldum sem þarf til eldunar. Boðið er upp á nóg af úrvali af te og kaffi. Mögulegt er að stækka eldhúsborðið. Rúmið er uppábúið með góðum dúnsængum og koddum, rúmið er 160×200 cm og rúmast vel fyrir tvo gesti. Baðherbergi er með góðri sturtu, og eru handklæði og hand- og baðsápa til staðar. Þrif eru innifalin í verði gistingar.

Innritun er eftir klukkan 16:00.
Útritun er fyrir klukkan 11:00.

Athugið!  Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.

Blábjörg Guesthouse - Borgarfjörður eystri

Staðsetning: Blábjörg Guesthouse er staðsett í sjávarþorpinu Borgarfirði eystri, 71 km frá Egilsstöðum. Blábjörg er með gistiheimili, veitingastað og heilsulind. Gistiheimilið býður upp á breitt úrval af gistingu frá herbergjum með sameiginlegri aðstöðu til lúxusíbúða. Boðið er upp á ókeypis WiFi og ókeypis bílastæði.

Tveggja manna herbergi: Björt herbergi með tvíbreið rúm, viðargólfi og gólfhitun. Sameiginleg baðherbergi. Kvistgluggi.
Stúdíoíbúð: Stúdíóíbúðin er með eitt hjónarúm í svefnherberginu, einn svefnsófi í stofunn, flatskjá, eldhúskrók með uppþvottavél, þvottavél og eigin verönd. Baðherbergið er með sturtu. Íbúðin er 60 m² að stærð og rúmar 4 fullorðna.

Tveggja herbergja íbúð: Íbúðin er Björt og nútímaleg tveggja herbergja íbúð með sérinngang, sófa, fullbúnu eldhúsi með uppþvottavél, flatskjá og eigin verönd.  Baðherbergið er með sturtu. Eitt svefnherbergið  er með hjónarúmi og hitt svefnherbergið með tveimur einbreiðum rúm, alls fjögur gistipláss.

Þriggja herbergja íbúð: Íbúðin er björt og nútímaleg þriggja svefnherbergja íbúð með sérinngangi, flatskjá, fullbúnu eldhúsi með uppþvottavél og eigin verönd. Tvö baðherbergi með sturtu. Þvottavél og þurrkari. Eitt svefnherbergi er með einu hjónarúmi, annað svefnherbergið er með einu hjónarúmi, og þriðja svenherbergið er með tveimur einbreiðum rúmum, alls sex gistipláss.

Veitingar: Veitingastaðurinn okkar, Frystiklefinn, býður upp á fjölbreytta rétti þar sem áherslan er á staðbundið ferskt hráefni. Á matseðlinum finnur þú sígilda rétti í  bland við hefðbundinn íslenskan mat, allt frá pizzum til sviðasultu.

Slökun: Ef þig vantar hvíld og slökun, þá er Musterið, Spa&Wellness, fullkominn staður til að slaka á eftir skemmtilegan dag. Útsýnið úr heitu pottunum er stórkostlegt.

Blábjörg býður þér einstakt og frábært tækifæri til að skoða falinn fjársjóð sem heitir Borgarfjörður eystri. Svæðið hefur upp á margt að bjóða fyrir allt náttúruáhugafólk, þar á meðal nokkrar af fjölmennustu byggðum álfa á Íslandi og gífurlega fjölbreytni gönguleiða. Það er stutt í Hafnarhólmann sem býður upp á besta aðgengi að lunda á Íslandi, þar getur þú fylgst með fuglunum í tveggja metra fjarlægð.


Athugið! Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.

Hótel Kríunes - Höfuðborgarsvæðið

Staðsetning: Hótel Kríunes er ævintýralegt sveitahótel staðsett við Elliðavatn á Vatnsendabletti í aðeins um 15 mínútna akstursfjarlægð frá miðbæ Reykjavíkur.

Herbergin: 
Á hótelinu eru 27 herbergi þar á meðal tvær svítur og fjölskyldu herbergi. Öll herbergin eru með sérbaðherbergi og stór hluti þeirra er með útsýni yfir Elliðavatn. Einnig eru þrír fundarsalir sem leigðir eru út ásamt veitingum. Hótelið tekur á móti hópum í mat. 

Veitingar: Hótelið býður upp á morgunverðarhlaðborð, ávaxtakörfur, morgunhressingu, hádegisverð, síðdegiskaffi, pinnamat og kvöldverð.

Afþreying: Það er mikið úrval af afþreyingu í nágrenni við hótelið. Hægt er að leigja kayjaka og hjól ásamt því að selt er veiðileyfi á Elliðavatni.  Verslunarmiðstöðin Smáralind er aðeins um 5-7 mínútna aksturfjarlægð sem hefur að geyma þekktar verslanir, veitingastaði og bíó. 

Hótel Kríunes hentar afar vel fyrir þá sem vilja kíkja í t.d. helgarferð í höfuðborgina.

Athugið! Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.

Gistiheimilið Keflavík - Reykjanes

Staðsetning: Gistiheimilið Keflavík er rétt á móti Hótel Keflavík eða í hjarta Reykjanesbæjar, þar sem þú getur notið allra þeirrar þjónustu sem er boðin fyrir hótelgesti. Gistiheimilið var endurbætt að öllu leytið árið 2019 og öll herbergi er ný með þægileg rúm, með góðum koddum og sængum og eru með fríu þráðlausu interneti, hágæða sjónvarpstæki með margs konar ókeypis stöðvum, skrifborð og skrifborðsstól, síma og handklæðum. Meginmarkmið eru einföld og góð gisting með persónulegri þjónustu sem lætur þér líða alveg eins og heima.

Veitingar: Fallegt og nýlega endurbættur veitingastaður fyrir hádegismat eða kvöldverð. KEF veitingastaður er fyrsta flokks a la carte veitingastaður sem býður upp á ævintýralega rétti, eldaða úr fersku úrvalshráefni úr héraði svo þú getur alltaf verið viss um gæðin.

Afþreying: Gisting á Gistiheimili Keflavík inniheldur okkar margrómaða morgunverðarhlaðborð sem er opið daglega frá kl 08:00-10:00, aðgangi að öllum almenningsrýmum Hótel Keflavik, tölvum í viðskiptarými, fundaraðstöðu og loks aðgangi að líkamsræktarstöðu þar sem gestir geta notað margskonar líkamsræktartæki, spinning og aerobic tíma sem og saunu og ljósabekki. Golf er í nágreninu, góðar göngu- og hjólaleiðri er alls staðar í kring, Menningar- og listastöðin Duushús, Skessuhellir, Rokksafn Íslands, Stekkjakot, Víkingheimar svo eitthvað sé nefnd.

Herbergin: Gistiheimilið er allt á einni efri hæð hússins með 5 twin herbergjum og fjölskylduherbergi fyrir 4 með kojum. Herbergin deila 2 baðherbergjum með sturtum og litlum eldhúskrók með kaffi og te aðstöðu og örbylgjuofni. Öll herbergi gistiheimilisins hafa minibar.

Móttakan er opin 24/7 og móttökustarsfólk okkar mun glaðlega aðstoða þig við að skipuleggja ferðalagið þitt á svæðinu. Við getum mælt með veitingastöðum, skoðunarferðum og akstri. Leyfðu okkur að vera partur af þínu ferðalagi um Reykjanesið.


Athugið! Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.

   Fyrri síða12 Næsta síða >>