Viltu borða morgunbrauðið með öndunum?
Við erum meðal annars með klassískan "Bed & Breakfast" gististað sem heitir Andabyggð. Já, þú last rétt; Andabyggð, til heiðurs öllum þeim margvíslegu andategundum sem búa sér heimili við Mývatn. Þar á meðal er einkennisfugl Mývatnssveitar, húsöndin sem verpir hvergi annarsstaðar í Evrópu.
En hvort sem þú ert mikill anda-aðdáandi eða ekki þá fer vel um þig í tveggja manna herbergi í Andabyggð, með sér baðherbergi og aðgangi að sameiginlegri stofu, eldhúsi og grillsvæði. Það liggur í hlutarins eðli að morgunverður en innifalinn í verði gistingar, þetta er jú B&B. Við mælum eindregið með því á góðviðrisdegi að setjast út með morgunkaffið og drekka í sig fegurð umhverfisins á meðan bollinn er tæmdur.
Morgunverðar upplýsingar
Continetal, vegetarian, vegan, gluten-free, hlaðborð