Athugið! Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.
Við bjóðum ykkur velkomin í heimsókn á Landhótel þar sem hægt er að sameina lúxusdvöl og ævintýralegar skoðunarferðir um Suðurland.
Í nágrenni við hótelið eru flestir áhugaverðustu staðir Suðurlands og eru óteljandi afþreyingarmöguleikar í boði eins og jöklaferðir, fjallgöngur, hjólaferðir, dagstúrar í Landmannalaugar, Þórsmörk, Þjórsárdal ofl. Landhótel er með mjög rúmgóð herbergi og glæsilega fundaraðstöðu fyrir stóra sem smáa fundi hvort sem það er fyrir ráðstefnur, hópefli, vinnufundi, árshátiðir eða önnur tilefni.
Staðsetning Landhótels er alveg einstök með drottningu okkar Heklu í næsta nágrenni og útsýni til allra átta. Hér er engin sjónmengun frá borg eða bæ og er stórkostlegt að vera á útsýnissvölum hótelsins þegar Norðurljósin æða yfir stjörnubjartan himinninn.Í 1-3 tíma radíus eru flestir áhugaverðustu ferðamannastaðir suðurlands og eru óteljandi afþreyingarmöguleikar í boði eins og hestaferðir, jöklaferðir, fjallgöngur, dagstúrar í Landmannalaugar, Þórsmörk eða Þjórsárdal má nefna sem dæmi.
Á Landhóteli færð þú að njóta einstakrar náttúru og þú getur alltaf gert ráð fyrir að fá vinalega og góða persónulega þjónustu.
Gisting fyrir allt að sex manns
Húsið er 160 fermetra lúxusíbúð með 3 einkabílastæði, bílastæðin eru vöktuð með myndavélum allan sólarhringinn, stór einkagarður og verönd með rúmgóðum heitum potti algerlega framúrskarandi svæði. Baðherbergin eru einnig með upphituð marmaragólf og handklæðaofn. Gestir geta deilt frábæru útsýni yfir kvöldverðinn við matarborði, sem er með þægilegum sætum fyrir allt að 8 manns.
Húsið hefur að geyma öll helstu tæki og búnað t.d. sjónvarp, þvottavél, uppþvottavél, þurrkari, gasgrill, þráðlaust internet, loftkæling o.f.
Allt er þetta í aðeins 15 mínútna fjarlægð frá miðbæ Reykjavíkur. Boðið er upp á útigufubað sem er eins og gamalt torfhús, í líkingu eins og það var byggt í kringum árin 1700. Einkasvalir eru við húsið með heitum potti og algerlega frábæru fjallaútsýni. Stór einkagarður og verönd eru við húsið, húsinu fylgja 3 einkabílastæði. Bílastæðin eru vöktuð með myndavélum allan sólarhringinn
Húsið er mitt á milli Smáralind og Kringlunnar (í innan við 5 mínútna akstursfjarlægð) og í 10 mínútna akstursfjarlægð frá Nauthólsvík. Það eru margir möguleikar í nágrenninu fyrir dásamlegan mat og jafnvel matvöruverslanir.
Kíktu í höfuðborgina og láttu fara vel um þig og þína í fallegri eign.
Athugið! Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.