Gisting í þéttbýliskjarna með ævintýrin á næsta leiti
Það er ekki alltaf nauðsynlegt að velja annan kostinn af tveimur. Stundum er hægt að njóta þess besta úr báðum heimum. Gistihúsið og íbúðirnar á Eldá, í þorpinu Reykjahlíð, eru örfá skref frá þeirri þjónustu sem býðst "uppi í Þorpi" meðal annars matvöruverslun og vínbúð en athugið að ÁTVR er með lokað á laugardögum og sunnudögum. Álíka örfá skref eru svo út í náttúruna með allri sinni fegurð og ævintýrum.
Íbúðirnar, Eldá Apartments, henta fullkomlega fyrir þau sem vilja vera út af fyrir sig. Í öllum svefnhergbergjum er fataskápur, spegill og vaski. Í eldhúsinu er hægt að ganga að öllu sem þú þarft til að elda eins og heima hjá þér og svo er indælt að njóta matarins í notalegum borðkrók. Á baðherberginu ræður snyrtimennska og einfaldleiki ríkjum og það er misjafnt eftir íbúðum hvort þar er sturta eða baðker. Svo má líka minnast á að í hverju svefnherbergi er lítið skrifborð þar sem gott er að tylla sér með fartölvuna, hafa samskipti við umheiminn eða skrifa ferðasöguna.
Í boði 1. október til 10. júní.
Morgunverðar upplýsingar
Continetal, vegetarian, vegan, gluten-free, hlaðborð