Athugið! Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.
Staðsetning: Hótel Valaskjálf er á Egilsstöðum höfuðstað Austurlands og er staðsett í hinu vinsæla héraði Fljótsdalshéraði sem hefur að geyma margar af fegurstu náttúruperlum landsins. Á Héraði er mikið menningar-og listalíf sem mótast hefur af fegurð umhverfisins. Frítt internet er á öllu hótelinu. Öll herbergin eru reyklaus.
Einstaklingsherbergi: Hótelið býður upp á nútímaleg og notaleg eins manns herbergi. Rúmin eru þægileg, 90 cm breið og veita góðan nætursvefn
Hjónaherbergi: Hótelið býður upp á nútímaleg og notaleg hjónaherbergi. Rúmin eru þægileg, 153 cm breið (queen size) og veita góðan nætursvefn.
Þriggja mannaherbergi: Á hótelinu er að finna 3 þriggja manna herbergi. Notaleg herbergi með einu 153 cm rúmi (queen size) og einu einstaklingsrúmi. Meðalstærð herbergjanna er 20m2.
Veitingar: Glæsilegur veitingastaður er staðsettur á Hótel Valaskjálf. Matseðillinn er undir sterkum áhrifum frá löndunum við Miðjarðarhafið. Pasta-, fisk- og kjötréttir ásamt ekta ítölskum pizzum, eldbökuðum í handgerðum eldofni frá Róm. Að sjálfsögðu eru pizzurnar gerðar af sönnum ítölskum pizzaiolo og eingöngu úr ítölskum hráefnum. Á Ölstofunni er frábært úrval af kokteilum og öðrum drykkjum á kana.
Við hótelið er veitingastaður í Amerískur diner í 50´s stíl, eini sinnar tegundar á Íslandi. Fjölbreyttur morgunverðarseðill, tilvalinn til að hefja daginn.
Athugið! Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.
Staðsetning: Hótel Höfn er 3ja stjörnu hótel á Hornafirði. Fegurðin er við Hótel Höfn og árstíminn skiptir ekki máli. Hið magnaða jöklaútsýni yfir Vatnajökul með allri sinni litadýrð er engu líkt. Sjáðu sólina setjast fyrir aftan jökulinn yfir sumartímann eða njóttu norðurljósanna í endurskini hans á veturna.
Veitingar: Á hótelinu er veitingastaðurinn Ósinn. Við leggjum mikla áherslu á íslenskt hágæðahráefni í okkar matseld. Á matseðlinum finna gestir girnilega humarrétti með hornfirskum humri auk kjöt-, fisk-, og grænmetisrétta. Við erum stolt af morgunverðinum okkar þar sem boðið er upp á fjölbreytt og girnilegt hlaðborð. Bakað er á staðnum og er tilvalið að njóta morgunverðarins með jöklaútsýninu.
Herbergin: Á hótelinu eru 36 stílhrein og falleg herbergi og eru 12-18 fm að stærð. Herbergin eru með sér baðherbergi, með þægilegum rúmum og mjúkum rúmfötum. Í öllum herbergjum er t.d. sjónvarp og þráðlaust net.
Afþreying: Fjölmargir útivistarmöguleikar eru í boði á svæðinu, t.d. jöklagöngur, íshellaferðir, ísklifur, bátsferðir, kayakferðir o.fl.
Athugið! Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.