Hótel Framtíð

Staðsetning: Hótel Framtíð er staðsett á Djúpavogi með frábært útsýni yfir Djúpavogshöfn og er í 8 km fjarlægð frá Búlandstindi.

Herbergin: Á hótelinu eru þrjú einstaklingsherbergi með sameiginlegu Baðherbergi, fimm tveggja manna herbergi án baðs, tuttugu 17m2 herbergi með sturtu, hreinlætisaðstöðu, hárþurrku, sjónvarpi, kaffi - og tesetti, og  þriggja manna 17m2 herbergi með þremur rúmum, sturtu, hreinlætisaðstöðu, hárþurrku og sjónvarpi,

Veitingar: Hótelið býður upp á staðbundna sjávarrétti og bar. Á hótelinu er einnig setustofa/lounge þar sem þú getur sest niður og slakað á með góðan drykk í hönd.

Afþreying: Hægt er að taka langar og stuttar gönguleiðir meðfram stórbrotinni strandlengju eldfjallasandstranda og grýttra gróðurs. Að ganga upp Búlandstind sem 1069 m að hæð er stórkostleg upplifun með fallegt útsýni. Sundlaug og heilsulind Djupivogs er aðeins í 150 metra fjarlægð.

Athugið! Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.

Hótel Bláfell

Hótel Bláfell var opnað á Breiðdalsvík árið 1983 en er nýlega mikið endurnýjað. Hótelið er umvafið mikilfenglegum fjöllum og svörtum söndum. Hótelið er friðsæl vin mitt í hinni hráu fegurð Breiðdalsvíkur á Austfjörðum.

Á hótelinu eru 37 vel búin herbergi, auk huggulegrar setustofu með arni og bókasafni, finnskri sauna og veitingastaðar. Veitingastaðurinn býður upp á ekta íslenska rétti, matreidda með ferskum hráefnum sem sótt er í nærumhverfi hótelsins.

Framtíð Apartments & Holiday Homes - Austurland

Staðsetning: Framtíð Apartments & Holiday Homes er staðsett á Djúpavogi. Hægt er að velja um sumarhús eða íbúðir, en allar einingarnar eru með sérinngang og bjóða upp á öll helstu nútímaþægindi.

Meyjarskemma íbúðir A og B: Tvær nýjar íbúðir um 49m² að stærð. Íbúðirnar eru búnar einu svefnherbergi með tvíbreiðu rúmi og í stofu er tvíbreiður svefnsófi , þá er einnig mögulegt að koma fyrir einu aukarúmi. Hvor íbúð er með gistirými fyrir allt að 5 manns..  Í báðum íbúðum eru fullbúin eldhús, stofa, hreinlætisaðstaða með baðkari, sturtu og þvottavél/þurrkara.

Sumarhús: Fjögur 28 m² sumarhús með útsýni yfir smábátahöfnina. Öll sumarhúsin eru með einu svefnherbergi og tveimur rúmum, eldunaraðstöðu, setkrók og hreinlætisaðstöðu. Húsin henta vel fyrir tvo til þrjá einstaklinga. Af veröndinni er tilvalið að njóta útsýnisins

Íbúð 1 er 40m2 stúdíóíbúð með tvíbreiðu rúmi og hentug gisting fyrir allt þrjá eintaklinga. Íbúðin er með fullbúnu eldhúsi og hreinlætisaðstöðu.

Íbúð 2 er 40m2 með einu svefnherbergi með tvíbreiðu rúmi og tvíbreiðum svefnsófa í stofu og hentar því vel fyrir 2-4 einstakinga. Íbúðin hefur fullbúið eldhús og hreinlætisaðstöðu. Sameiginleg þvottavél er fyrir íbúð 1 og 2.

Íbúð nr. 3 er 60m2 með tveimur svefnherbergjum og hentar vel fyrir allt að 6 manns. Fullbúið eldhús, hreinlætisaðstaða, þvottavél/þurrkari og verönd með fallegri fjallasýn.

Dekraðu við þig og láttu þér líða eins og heima hjá þér. Falleg fjallasýn og nálægð við nátttúruna. 

Athugið! Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.

Hostel Framtíð

Hostel Framtíð er farfuglaheimili sem er staðsett á Djúpavogi og býður upp á herbergi með ókeypis Wi-Fi.

Á hostelinu eru 2 til 4 manna 14 fm herbergi með sameiginlegu baðherbergi. Öll herbergin eru með vask en án sérbaðherbergi. Sturtur og salerni eru frammi á gangi. Aðgangur að eldhúsi og setustofu með helstu eldunartækjum, aðstaða fyrir 8 manns að borða samtímis

Hostelið er afar vinsælt hjá hópum sem ferðast saman um Ísland en algengt er að reiðhjólafólk sem kjósa að ferðast um Ísland á reiðhjóli velja Hostelið til að hvíla sig fyrir næstu hjólatörn.

Á meðal vinsællar afþreyingar á svæðinu má nefna gönguferðir og hjólreiðar. Gestir geta leigt reiðhjól á staðnum. Þjóðvegur 1 er í innan við 5 mínútna akstursfjarlægð.


Athugið! Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.

Framtíð Camping Lodging

Viltu upplifa öðruvísi gistingu?

Staðsetning: Framtíð Camping Lodging er staðsett á Djúpavogi býður upp gistingu í litlum svefnhýsum sem hafa fengið viðurnefnið Gistitunnurnar en það er staðsettar við tjaldsvæði.

Svefnherbergi: Svefnherbergin í gistitunnunum eru með þremur einbreiðum dýnum. Þetta er svefnpokagisting sem þýðir að gestir geta komið með eigin svefnpoka. Einnig geta gestir leigt kodda, sæng, lín og handklæði á staðnum. Allar einingar eru hitaðar með rafmagnsofnum og innihalda setusvæði og rafmagnstengi.

Þjónusta og aðstaða: Í þjónustubyggingunni sem er rétt við hlið tjaldsvæðið hafa gestir aðgang að lítilli verslun, sameiginlegu eldhúsi, sameiginlegum baðherbergjum og sturtuaðstöðu sem þarf að greiða fyrir. Gestir hafa einnig aðgang að sameiginlegu þvottahúsi sem greiða þarf aukalega fyrir. Hótel Framtíð er rétt við hlið tjaldsvæðisins og þar er hægt að nálgast ókeypis þráðlaust net og ýmsar veitingar.

Af áhugaverðum stöðum á Austurlandi má til dæmis nefna Höfn, Jökulsárgljúfur og Fáskrúðsfjörður. Næsti flugvöllur er Egilsstaðaflugvöllur, 86 km frá gististaðnum.

Athugið! Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.

Hótel Kría - Suðurland

Staðsetning: Hótel Kría opnaði sumarið 2018 í Vík í Mýrdal. Vík í Mýrdal er rétt um tveggja klukkustunda keyrslufjarlægð frá Reykjavik og hefur lengi verið talinn einn helst ferðamannastaður Íslands.

Herbergin: Hótelið samanstendur af 72 herbergjum og einni svítu, bar og veitingarstað. Öll herbergin eru með nútímalegri innréttingu og eru fullbúin með ókeypis Wi-Fi Interneti, LCD, gervihnattasjónvarpi, hárþurrku, fatagrind, auka koddum, síma, sápu og katli með te og kaffi. Herbergin eru með skrifborði og sérbaðherbergi. Herbergin eru rúmgóð, björt og með þægindin í fyrirrúmi. 

Veitingar: Á hótelinu er veitingastaðurinn Drangar sem opnaði sumarið 2018 og leggjum við metnað okkar í að velja aðeins vandað árstíðabundin hráefni. Einnig á hótelinu er nútímalegur bar á hótelinu. Hótelið býður upp á léttan morgunverð og samanstendur af staðbundnum afurðum.


Ein af þekktustu ströndum Íslands "Svarta ströndin" er aðeins í 5 mínútna göngufjarlægð frá hótelinu. 

Athugið! Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.

Stracta Hótel - Suðurland

Staðsetning: Stracta Hótel er staðsett á Suðurlandi nánar tiltekið á Hellu og er staðsetning hótelsins upplögð fyrir ferðalanga í leit að ævintýrum á suðurlandinu en þar er að finna fjöldan allan af helstu náttúruperlum landsins.

Þægindi og vellíðan: Í garði hótelsins eru heitir pottar og gufuböð þar sem gestir geta slakað á án endurgjalds.

Veitingar: Bæði Bistro og Garður veitingastaðirnir á Stracta Hóteli leggja áherslu á heilsusamlegt fæði sem unnið er úr afurðum í nærliggjandi sveitum.Gestir okkar geta notið fjölda rétta. Bistro veitingahúsið er góður kostur fyrir gesti með fjölbreytt úrval við hæfi hvers og eins.

Herbergin: Á hótelinu eru standard herbergi. superior herbergi, studio herbergi, tveggja herbergja íbúðir og Svítur

Starfsfólkið okkar í móttökunni veitir gestum með glöðu geði aðstoð við að finna áhugaverða staði til göngu- eða skoðunarferða og ef fólk er að leitast eftir annarskonar ferðum erum við í samsstarfi við fjölda ferðaþjónustuaðila sem bjóða upp á fjölbreytta dagskrá og afþreyingu. 


Athugið! Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.

Um íbúðina
Björt og falleg nýuppgerð 75fm íbúð með fallegu fjalla og sjávar útsýni yfir Akureyri. Gisting fyrir allt að 7.
Öll helstu þægindi innifalin, vel útbúið eldhús með uppþvottavél, nýtt snjallsjónvarp með Netflix, háhraða internet, þvottavél og þurrkari.
Komið er inn í forstofu þaðan er gengið inn á baðherbergið.
Úr forstofu er farið inn í íbúðina á hægri hönd er hjónaherbergi með 2földu rúmi og góðum skápum, á vinstri hönd er herbergi með koju, neðri kojan er 140 cm og efri 90cm.

Stofan með svefnsófa og nýju snjallsjónvarpi, úr stofunni er frábært útsýni er yfir Greifavöllinn, Akureyri og Vaðlaheiðina.
Eldhúsið er vel tækjum búið með uppþvottavél, ofni, örbylgjuofni, kaffivél og rúmgóðum ísskáp.

Staðsetning
Staðsetningin er á Brekkugötu sem liggur upp frá Ráðhústorgi. Stutt er allt það helsta sem Akureyri hefur uppá að bjóða, svo sem veitingastaði og kaffihús, verslanir, menningarhúsið Hof. Sundlaug Akureyrar er í 10 mínútna göngufjarlægð.
Næg bílastæði eru í Brekkugötu fyrir framan húsið. Frábærir veitingastaðir og kaffihús allt um kring.

3 mín. göngufæri frá aðalgöngugötu
10 mín. göngufæri frá sundlaug.
10 mín. göngufæri við kjörbúð.
5 mín. göngufæri frá strætóstöð.
5 mín. akstursfjarlægð frá flugvelli.

Æðisleg íbúð til að slaka á eftir ferðalag/skíði/göngu eða bara einfaldlega til að njóta á frábærum stað í frábæru umhverfi.

Hótel Laxárbakki

Laxárbakki býður gistingu og veitingar allt árið í kring.

Láxárbakki er sstaðsett í Hvalfirði á bökkum Laxár við þjóðveg 1, aðeins 12 km frá Akranesi og 17 km frá Borganesi.
Stutt er til allra helstu ferðamannastaða á vestur- og suðvesturlandi eins og Húsafells, Langjökuls, Þingvalla, Hvalfjarðar og Snæfellsness.

Stór veitingastaður er á Laxárbakka sem tekur allt að 100 manns í sæti. Ef það er veisla framundan þá er Laxárbakki klárlega einn valmöguleiki. 


 
   Fyrri síða12 Næsta síða >>