Athugið! Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.
Staðsetning: Hótel Hallormsstaður er staðsett á fallegum stað nærri gönguleiðum og ýmsum afþreyingartækifærum í skógi við Lagarfljót, 25 km suður af Egilsstöðum.
Herbergi: Hótel Hallormsstaður býður upp á 92 glæsileg herbergi við allra hæfi í miðjum Hallormsstaðaskógi. Mikil áhersla er lögð á þægindi og vellíðan gesta og eru öll herbergin búin vönduðum rúmum og líni. Herbergin eru fallega hönnuð og bjóða upp á öll nútímaþægindi. Frítt Wifi, flatskjá, kaffi, te og hárþurrku ásamt góðri sturtu. Sum herbergjanna bjóða upp á stórkostlegt útsýni yfir skóginn og Lagarfljótið. Öll herbergin eru reyklaus.
Veitingar: KOL BAR & BISTRO fallegur veitingastaður staður á annarri hæð hótelsins með ótrúlega útsýni yfir vatnið og skóginum. Á matseðlinum er fjölhæfur með mikið úrval af góðum mat. Hótel barinn býður upp á ljúffenga drykki og þægileg sæti þar sem gott er að tylla sér með glas í hönd bæði fyrir og eftir kvöldverð.
SPA: Á hótelinu eru úti-og innipottar, infrarauður saunaklefi og gufuklefi. Á hótelinu má finna notalegt nuddherbergi þar sem boðið er upp á úrval af slakandi nuddmeðferðum
Í nágrenninu eru margar fallegar gönguleiðir og gestum er velkomið að leigja fjallahjól á hótelinu. Hestaferðir eru einnig í boði í nágrenninu á sumrin.
Athugið! Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.
Staðsetning: Hótelið Laxá er á einstaklega kyrrlátum og fallegum stað, staðsett um 2 km frá Mývatni og í 30 mínútna akstursfjarlægð frá Goðafoss og Kröflu gígnum. Mývatns náttúruböð eru í 20 mínútna akstursfjarlægð frá hótelinu en Húsavík er í 45 mínútna akstursfjarlægð. Hestaferðir og gönguferðir í fallegu umhverfi eru algeng starfsemi á svæðinu.
Herbergin: Hótel Laxá var opnað árið 2014 og stendur við hið fallega Mývatn. Á hótelinu er að finna tvær herbergistegundir: standard herbergi og herbergi með útsýni yfir vatnið. Herbergin er innréttuð á nútímalegan hátt og hægt að bæta við auka rúmi sé þess óskað.
Standard herbergin: Í Standard herbergjum er hjónarúm eða tvíbreitt rúm og baðherbergi með sturtu. Herbergin eru 18m, mjög rúm góð og henta vel fyrir tvær fullorðna manneskjur. Hægt er að óska eftir auka rúmi fyrir þriðja einstaklinginn í herbergið gegn aukagjaldi.
Lake view herbergin: Frábært útsýni er í þessum herbergjum þar sem horft er yfir Mývatn út frá glugga herbergisins.herbergjum er hjónarúm eða tvíbreitt rúm og baðherbergi með sturtu. Herbergin eru 18m, mjög rúm góð og henta vel fyrir tvær fullorðna manneskjur. Hægt er að óska eftir auka rúmi fyrir þriðja einstaklinginn í herbergið gegn aukagjaldi.
Afþreying: Náttúruperlur við Mývatn, Gönguleiðir, fossar, fuglalífið, jarðböð og Hverasvæði. Frábær staður til að njóta náttúrunnar við Mývatn. Stutt er í alla hugsanlega afþreyingu, Jarðböðin á Mývatni, Dimmuborgir, Dettifoss, Ásbyrgi, Húsavík og margt fleira.
Veitingar: Á Hótel Laxá er veitingastaðurinn, Eldey, en nafnið er dregið af einni af eyjunum Mývatns. Góður matur og drykkur, góð þjónusta og fallegt umhverfi skapa ógleymanlega kvöldstund
Athugið! Allar bókanir og greiðslur í gegnum leitarvél Ferðaeyjaunnar fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.
Skoðaðu sumargjafabréfin HÉR
Athugið! Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.
Lava Apartments & Rooms er staðsett í miðbæ Akureyrar. Í boði eru fimm studíó íbúðir, átta tveggja manna herbergi og eitt einstaklings herbergi. Hver íbúð fyrir sig er fullbúin með húsgögnum og helstu nauðsynjum. Allar einingar eru með sér baðherbergi og frítt internet í boði. Helsta einkenni Lava Apartments & Rooms er að staðsetningin gæti ekki verið betri. Aðeins nokkur skref í helstu veitingastaði, verslanir og fleira
Lava Apartments hentar afar vel fyrir barnafjölskyldur og hópa.