Athugið! Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.
Smyrlabjörg er sveitahótel með 68 björtum og vel útbúnum tveggja, þriggja og fjögurra manna herbergjum með sérbaði. Ágætis aðstaða er fyrir fatlaða. Hárþurrkur, sjónvarp og þráðlaust net er í öllum herbergjum.
Veitingastaðurinn er alla jafn opin allt árið. Á matseðlinum er að finna fjölbreytta og fjölskylduvæna rétti.
Í nágrenninu eru margar af fallegustu náttúruperlum landsins. Mikið af fjölbreyttri og skemmtilegri afþreyingu allt í kring.
Staðsetning: Hótel Keflavík er staðsett í miðbæ Keflavíkur og rétt hjá útlöndum enda er Keflavíkurflugvöllur í aðeins 5 mín fjarlægð frá hótelinu. Keflavík er staðsett við Reykjanesskagann sem ber stórkostlegu náttúru, í miðbæ Keflavíkur, í 5 mínútna fjarlægð frá KEF flugvelli og aðeins 15 mínútur frá Bláa lóninu. Hótel Keflavík rekur einnig Diamond Suites sem er 5 stjörnu hótel og Guesthouse Keflavik
Veitingar: Í fallega glerskálanum okkar getur þú borðað undir stjörnunum bæði að innan eða utan á veitingastaðnum KEF Restaurant & Bar þar sem matreiðslumenn okkar munu útbúa máltíðina með ferskasta og besta íslenska hráefninu. Diamond Bar er okkar nýji og einstaki bar sem er staðsettur við móttöku hótels. Á daginn geta gestir okkar notið góð kaffis og meðlætis en á kvöldin erum við með fjölbreytt úrval af hágæða vínum í fallegu umhverfi. Á morgnana munt þú njóta okkar glæsilega morgunverðarhlaðborðs frá klukkan 08:00-10:00 alla daga og er það innifalið í dvöl þinni.
Afþreying: Á hótelinu er frí afnot að líkamsræktarstöð, þar er einnig gufubað og fitness-tímar á staðnum. Ókeypis reiðhjól eru á staðnum, golf er í nágreninu, góðar göngu- og hjólaleiðri og síðan er siglingar í nágreninu. Stutt er á ýmsa afþreyingu og athyglisverða staði sbr. Bláa Lónið, brúnna á milli heimsálfanna. Hægt er að fara í hvalaskoðun, sjá Víkingasafnið og risann inn í fjallinu svo eitthvað sé nefnt.
Herbergi: Á hótelinu eru 70 herbergi, hótelið býður upp á margs konar hlý og notaleg herbergi og svítur, margar nýuppgerðar. Megináherslan okkar er þægilegt aðstaða með faglegri og vinalegri þjónustu sem lætur þér líða eins og heima. Herbergin skiptast í standard herbergi með tvíbreiðurúmi, Delux-herbergi með tvíbreiðurúmi, eins manns herbergi með einbreiðu rúmi, Junior svíta með einu meðalstóru tvíbreiðurúmi, Basic herbergi fyrir þrjá með mörgum rúmum og Fjölskylduherbergi.
Móttakan er opin 24/7 og móttökustarsfólk okkar mun glaðlega aðstoða þig við að skipuleggja ferðalagið þitt á svæðinu. Við getum mælt með veitingastöðum, skoðunarferðum og akstri. Leyfðu okkur að vera partur af þínu ferðalagi um Reykjanesið.
Falleg nýlega uppgerð kósí íbúð með gistirými fyrir 6 manns.
Lýsing:
Íbúðin er hlýleg og kósí.
Íbúðin er á 4 og 5.hæð, neðri hæðin er með 2 svefnherbergi, annað hjónaherbergi með 2földu rúmi, hitt herbergið er með 2 rúmum. Rúmgóð stofa með borðstofuborði, flatskjá og mjög stórum svölum sem snúa að Laugaveginum.
Eldhúsið er með eldavél, örbylgjuofni og helluborði, allt sem þarf til eldamennsku.
Efri hæðin hefur ekki fulla lofthæð en á hæðinni er setustofa og rúm.
Staðsetning
Íbúðin er í miðbæ Reykjavíkur ofarlega á Laugaveginum, rétt við Umferðamiðstöðina, stutt í iðandi mannlíf og menningu, fjöldi vinsælla veitingastaða, kaffihúsa eru í seilingar fjarlægð.
10 mín. göngufæri við Lækjartorg
0 mín. göngufæri við Laugaveg
3 mín. göngufæri frá Sundhöll Reykjavíkur
5 mín. göngufæri við kjörbúð (Bónus Laugavegi)
12 mín. göngufæri frá Hörpunni
3 mín. göngufæri frá Mathöllinni Hlemmi