Athugið! Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.
Falleg nýlega uppgerð kósí íbúð með gistirými fyrir 6 manns.
Lýsing:
Íbúðin er hlýleg og kósí.
Íbúðin er á 4 og 5.hæð, neðri hæðin er með 2 svefnherbergi, annað hjónaherbergi með 2földu rúmi, hitt herbergið er með 2 rúmum. Rúmgóð stofa með borðstofuborði, flatskjá og mjög stórum svölum sem snúa að Laugaveginum.
Eldhúsið er með eldavél, örbylgjuofni og helluborði, allt sem þarf til eldamennsku.
Efri hæðin hefur ekki fulla lofthæð en á hæðinni er setustofa og rúm.
Staðsetning
Íbúðin er í miðbæ Reykjavíkur ofarlega á Laugaveginum, rétt við Umferðamiðstöðina, stutt í iðandi mannlíf og menningu, fjöldi vinsælla veitingastaða, kaffihúsa eru í seilingar fjarlægð.
10 mín. göngufæri við Lækjartorg
0 mín. göngufæri við Laugaveg
3 mín. göngufæri frá Sundhöll Reykjavíkur
5 mín. göngufæri við kjörbúð (Bónus Laugavegi)
12 mín. göngufæri frá Hörpunni
3 mín. göngufæri frá Mathöllinni Hlemmi
Laxárbakki býður gistingu og veitingar allt árið í kring.
Láxárbakki er sstaðsett í Hvalfirði á bökkum Laxár við þjóðveg 1, aðeins 12 km frá Akranesi og 17 km frá Borganesi.
Stutt er til allra helstu ferðamannastaða á vestur- og suðvesturlandi eins og Húsafells, Langjökuls, Þingvalla, Hvalfjarðar og Snæfellsness.
Stór veitingastaður er á Laxárbakka sem tekur allt að 100 manns í sæti. Ef það er veisla framundan þá er Laxárbakki klárlega einn valmöguleiki.
Skoðaðu sumargjafabréfin HÉR
Athugið! Allar bókanir og greiðslur fara fram beint á bókunarsvæði gistiaðila án milligöngu Ferðaeyjunnar.