Stór og einstaklega notaleg með tveimur stökum rúmum eða einu hjónarúmi, baðherbergi með sturtu og helstu nauðsynjum. Nútímaleg hönnun, látlaus og stílhrein í þægilegum litatónum. Möguleiki á aukarúmi fyrir þriðja gestinn. Verðskráin gildir fyrir herbergið eina nótt. Morgunverðarhlaðborð er innifalið daglega fyrir alla gesti. Þráðlausa netið er ókeypis. Stærstu herbergin eru með aðgengi fyrir hjólastól og stærra baðherbergi.
- Morgunverðarhlaðborð/morgunverður er innifalinn alla morgna
- Stór sjónvarpsskjár á vegg í öllum herbergjum
- Kæliskápur í hverju herbergi, ókeypis afnot
- Kaffi og te, án endurgjalds í öllum herbergjum
- Dagleg þrif á herbergjum
- Hárþurrka á baðherbergi
- Baðherbergi með sérhita-herbergishitastillingu
- Hársápa, hárnæring o.fl. í boði hótelsins
- Straujárn og strauborð í gestamóttöku
- Aukakoddar í fataskápnum
- Frítt þráðlaust internet
- Skrifborð og setukrókur
- Nútímalegur fataskápur
- Hilla fyrir farangur
- Heitir pottar í bakgarðinum, endurgjaldslaust fyrir gesti
- Hótelið er reyklaust / reykingar bannaðar
- Næg bílastæði
- Rafhleðsla fyrir bíla
- Þú getur óskað eftir aukarúmi eða barnarúmi (fáðu staðfestingu fyrir komu).
- Sendu okkur tölvupóst með erindinu, eða merktu við séróskir í næsta skrefi.
- Netfangið okkar: info@hotelgullfoss.is
- Stærstu herbergin okkar eru með aðgengi fyrir hjólastóla og stærra baðherbergi.
- Engin lyfta er á hótelinu enda byggingin á einni hæð.